Fasistanámskeið
3 / 5
Aldan (Die Welle)
Leikstjóri: Dennis Gansel
Aðalhlutverk: Jürgen Vogel, Frederick Lau, Jennifer Ulrich, Maximilian Vollmar.
Hvernig býrðu til fasista? Það er rannsóknarspurning Dennis Gansel, leikstjóra Die Welle, sem fjallar um Rainer Wenger, kennara nokkurn sem er falið það verkefni að kenna nemendum sínum um alræði í svokallaðri verkefnaviku. Honum Rainer lýst ekki sérstaklega vel á verkefnið, hefði helst viljað kenna anarkisma, en ákveður svo að fara óvenjulegar leiðir og búa til alræðisríki í kennslustofunni, tilraun sem vitaskuld gengur of langt.
Kveikjan að hugmynd herra Wengers, en það lætur hann nemendurna kalla sig þegar alræðið tekur völdin, er sú sannfæring nemenda hans að mannkynssagan hafi kennt Þjóðverjum nóg til þess að þeir láti aldrei glepjast af alræðistilburðum aftur.
Og vissulega er þetta á köflum mjög sterk bíómynd. En hún kafar aldrei alveg nógu djúpt. Hennar stærsti galli er hversu ósannfærandi þau hvörf eru þegar Wenger breytir bekknum í hlýðna fótgönguliða – unglingskrakkar á miðju mótþróaskeiði er einfaldlega ekki jafn auðvelt að fá til þess að ganga í takt og myndin gefur til kynna. Þarna vantaði merkilegt nokk eitt stykki inspíreraða kennararæðu til þess að gera myndina raunsærri, þú sannfærir ekki heilu bekkina af táningum með því að kenna þeim rétta öndun og gæsagang, sérstaklega ekki þegar þeir eru jafn hugsandi og leitandi eins og krakkarnir í þessum bekk virðast vera.
Þannig vantaði markvissari skoðun á því hvaða hluti þyrfti að setja í þá bragðvondu naglasúpu sem fasisminn er svo hún fari að sjóða, en hitt má myndin eiga að hún sýnir ágætlega þróunina eftir að súpan er byrjuð að malla. Uppskriftin var bara ekki nógu sannfærandi til að byrja með.

