Kvenmannslaus í kúlnahríð
Bíórýni: Quantum of Solace
Einkunn: 3,5 /5
Leikstjóri: Marc Forster
Aðalleikarar: Daniel Craig, Olga Kurylenko, Mathieu Amalric, Judi Dench, Giancarlo Giannini, Jeffrey Wright, Gemma Arterton.
Besti Bond allra tíma! Þetta fullyrtu ófáir um Casino Royale og því kemur ekki á óvart að þrátt fyrir annars ágætis dóma þá telji flestir Quantum of Solace vonbrigði. En sú nýja er jafn vanmetin og fyrri mynd Craig var ofmetin. Í raun er Quantum of Solace í flesta staði betri mynd en Casino Royale. Hún er hraðari en þó öruggari og stendur betur í lappirnar og flestar persónur eru dregnar upp af meiri sannfæringu og mennsku en í fyrri myndinni, René Mathis og Felix Leiter eru til dæmis orðnar af alvöru persónum hér sem okkur varðar um ekkert síður en Bond - og þrátt fyrir þetta er hasarinn miklu meiri. Eins er Dominic Greene ólíkt eftirminnilegri skíthæll en forveri hans Le Chifre, og á þar franski eðalleikarinn Mathieu Amalric stóran þátt í. Loks er atriðið þegar Bond syrgir látinn félaga og hendir honum svo í ruslagám eitthvert ljóðrænasta og fallegasta atriði seríunnar.
Þá er tilfinning myndarinnar fyrir öllum þeim fjölmörgu stöðum sem Bond heimsækir betri en oftast, því á meðan Svartfjallaland Casino Royale átti ekkert skylt við raunveruleikann þá er sú mynd sem Marc Forster bregður upp hér af Haítí og Bólivíu glettilega sannfærandi - og þá minnir hið grunsamlega leynifélag Quantum ískyggilega á íslenska banka sem eru alveg að fara að hrynja og skilja okkur öll eftir í skítnum.
Daniel Craig heldur svo áfram að leika Bond ekkert sérstaklega vel en þjóna honum þeim mun betur. Pierce Brosnan var til dæmis miklu betri Bond, en leikstjórar síðustu tveggja mynda hafa hins vegar notað Craig og svipbrigðalítið andlit hans vel, búið til úr honum einhverja óstöðvandi drápsvél í anda Tortímandans - og þar nýtist svipbrigðaleysið ágætlega.
Serían hefur svo verið endurlífguð á þann hátt að nú tengjast myndirnar og eru beint framhald hver af annarrri og því má vel halda því fram að það sé varla tímabært að dæma þær strax, það gæti þess vegna verið að það verði ekki fyrr en eftir 2-3 myndir til viðbótar sem tímabært verður að dæma hvort þessi hluti Bond-bálksins hafi heppnast vel. En samt stenst maður ekki freistinguna, best að bera þessar fyrstu tvær myndir Craig-Bondsins saman og sjá hvor er betri.
Og fyrir alla sína ótal kosti þá ætti Quantum of Solace klárlega að vinna þann slag á stigum - ef Casino Royale næði ekki að leggja hana á mögnuðu rothöggi. Það rothögg er Bond-stúlkan Vesper Lynd, sem Eva Green leikur og gerir hana einhverja albestu Bond-stúlku sögunnar. Á sama tíma eru þær Olga Kurylenko og Gemma Arterton alveg prýðis-Bondstúlkur - þá sjaldan þær fá eitthvað að gera. En ólíkt Vesper gefst þeim ekki tími til að komast bak við brynju Bonds - og kvenmannslaus er njósnari hennar hátignar bara vél, við þurfum kvenmannsaugu til að spegla sál þessarar drápsvélar. En kannski er bara ekkert eftir til að spegla?

Skrifa athugasemd