Vefrit um pólitík og mannlíf
3. september 2010

Konur Steinars Braga komnar úr prentun

Kemur út hjá Nýhil eftir forlagaflakk

21.11.2008 Bækur

steinarbragi

Fáar íslenskar skáldsögur síðari ára hafa farið jafn óvenjulega leið í prentsmiðjuna og Konur Steinars Braga. Um svipað leyti og staðfestar fréttir komu af því í haust að bókin væri væntanleg þá skrifar Kristján B. Jónasson, formaður Íslenskra bókaútgefanda, pistil á bloggið sitt um ónefnt handrit og sagði þar meðal annars: "Þetta var nútímalegasta íslenska skáldsaga sem ég hef lesið um langa hríð. Mér fannst aftur eins og íslenskar bókmenntir væru í sambandi við samtímann og næðu að gera honum betri skil en pistlahöfundar, vísindamenn og bloggarar. Þar sem þetta er ekki auglýsing um væntanlega jólabók, heldur einfalt fagnaðarandvarp yfir því að enn skuli vera skrifaður alvöru skáldskapur á Íslandi, óþægilegur, harðneskjulegur og fallegur skáldskapur um þessa furðulegu tíma, treysti ég mér eiginlega ekki til að segja hvaða höfundur þetta var."

Í kjölfarið efndi bókaforlagið Bjartur til samkeppni þar sem það lofaði öllum sem giskuðu rétt á höfundinn ókeypis eintaki. Og lesendur heimasíðu forlagsins voru sannarlega getspakir, 376 af þeim 382 sem sendu inn svör giskuðu réttilega á Steinar Braga - og var í kjölfarið öllum heitið árituðu eintaki frá höfundi.

Þurfa vinningshafar að kaupa bækurnar sínar?

konur_steinar_bragiUndir lok október greindi Morgunblaðið hins vegar frá því að Steinar Bragi hafi hætt við að gefa út hjá Bjarti, rétt áður en bókin átti að fara í prentsmiðjur, en í dag kom hún úr prentun og var með merki Nýhil á kjölnum, og er líklega óhætt að segja að þetta sé ein stærsta skáldsagan sem Nýhil hefur gefið út til þessa. Fyrstu eintök koma í helstu bókbúðir á morgun en fer svo í almenna dreifingu eftir helgina.

En hvað um þessa 376 getspöku lesendur heimasíðu Bjarts?

"Við höfum ekki enn rætt við Bjart, en viljum að sjálfsögðu að Bjartur standi við sínar skuldbindingar og erum alveg tilbúnir til þess að ræða við hið ágæta fólk þar á bæ til þess að finna sanngjarna lausn á þessu máli," segir Jón Örn Loðmfjörð fulltrúi Nýhils. Þegar haft var samband við Guðrúnu Vilmundardóttur hjá Bjarti talaði hún á sömu nótum, að þetta væri einfaldlega samningsatriði og þau ættu örugglega eftir að finna farsæla lausn á þessum málum.

En hvað sem því líður þá verður óneitanlega forvitnilegt að sjá hvort bókin sjálf sé jafn forvitnileg og forsaga útgáfu hennar og lesendur geta glaðst yfir því að þurfa ekki að bíða eftir að komast að því fram að næstu jólum, sérstaklega ef hún rímar jafn vel við kreppuna og sögur herma.

-áhi

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica