Að gleyma að vera minntur á
Upplestrarröð Forlagsins
Gleymdu þér andartak er heitið á upplestrarröð Forlagsins þetta haustið og líkast til er hugmyndin sú að áheyrendur gleymi kreppunni um stund. Það verður þó hægara sagt en gert þegar Stefán Máni les upp úr Ódáðahrauni, sem gerist einmitt í undirheimum íslensks viðskiptalífs sem við höfum bölvað svo rækilega undanfarnar vikur. Þá verður einnig forvitnilegt að bera saman ágæta ræðu Kristínar Helgu Gunnarsdóttur á mótmælafundi síðasta laugardag og upplestri hennar á ævintýrum stelpuskottsins Fíusólar, en Fíasól er flottust er fjórða bókin í röðinni.
Gerður Kristný les einnig upp úr barna- og unglingabók, Garðinum, og Guðmundur Andri Thorsson biður okkur fyrir eftirfarani skilaboð; Segðu mömmu að mér líði vel. Leikskólafrömuðurinn umdeildi Margrét Pála Ólafsdóttir les upp úr ævisögu sinni, Ég skal vera grýla, sem Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir ritaði og þá verður veisla fyrir áhugamenn um sænskar glæpasögur, en Jens Lapidus mun lesa upp úr sögu sinni Fundið fé, eða Snabba cash eins og bókin heitir uppá ilhýru sænskuna.
Upplesturinn fer fram á Te & kaffi á annarri hæð bókabúðar Máls og menningar og þeir sem heillast nægilega til þess að kaupa einhverja bókina geta fengið þær á 20 % afslætti eftir lesturinn.
- áhi

Skrifa athugasemd