Vefrit um pólitík og mannlíf
3. september 2010

Á milli svefns og vöku

9.1.2009 9:45 Bækur

konur-domur
Bókarýni: 4 / 5
Konur
Höfundur: Steinar Bragi
Útgáfa: Nýhil / Mál og menning


konur

Þegar ég dottaði á næturvöktum í gamla daga þá kom fyrir að ég vaknaði upp með járnkaldan hroll í sálinni og það var ekki út af neinum draumum heldur út af einhverju sem ég hugsaði upphátt á milli svefns og vöku, hugsanir sem ég ritskoðaði alltaf þegar ég var almennilega vakandi. Allt þetta sem maður myndi aldrei segja upphátt við nokkurn mann, ekki einu sinni sjálfan sig. En í Konum talar Steinar Bragi um ýmislegt sem mátti ekki segja upphátt fyrir sjötta október. Ef bókin hefði komið út fyrir hrun hefði verið erfitt að segja hvort hún hefði verið úthrópuð eða hvort hún hefði orðið nauðsynleg fýlubomba inní gróðærið, en hvað sem því líður þá kallaði hún fram seiðing af þessum gamla járnkennda hrolli ljósaskiptanna og hún virðist líkleg til þess að kalla hann fram hjá heilli þjóð núna.

Þetta er nefnilega einhver mesta fíl-bad bók sem ég hef lesið, hér eru engir afslættir veittir. Jafnvel þegar heimsósóminn hefur verið keyrður í botn í öðrum verkum hefur einhver kaldhæðni og húmor verið notuð til þess að hlífa lesandanum fyrir versta áreitinu og aðeins þau allra svæsnustu neituðu lesandanum um einhverja von. Hér er ekkert slíkt, þetta er martröð einnar konu, Evu, sem er kominn jafn langt frá paradís og hægt er að komast – í háhýsi við Sæbrautina.

Milljarða eftir óskiljanlega milljarða

„Frá því hún fæddist í þennan heim mundi hún ekki til þess að hafa liðið skort – að geta ekki svalað þorsta sínum eða hungri á innan við nokkrum mínútum, ef hún bara gæfi sér tíma til þess, stæði upp, labbaði út í næstu búð. Hún hafði ekki þol fyrir skorti og hungrið og þorstinn yrðu bara byrjunin á því sem hún þyldi ekki; sígaretturnar, áfengið, kaffið, tölvan, fjölbreytnin – að hún hefði val, gæti horfið sjálfri sér ef hún vildi. Hún leitaði um íbúðina að flösku eða töflum eða sígarettu – gleymdum stubbi á bak við sófa, en fann ekki neitt.“ (117)

steinarbragiTextabrot á borð við þetta ýta sjálfsagt undir þá tilfinningu þeirra sem enn eiga eftir að lesa um að hér sé komin bók sem tætir íslenska efnahagsundrið í sig. En þótt þetta textabrot sé vissulega afskaplega lýsandi fyrir bókina sjálfa er Steinar Bragi ekki það augljós, því þótt óforskammaðir bankastarfsmenn og rotnandi þjóðfélag komi vissulega heilmikið við sögu þá er þetta fyrst og síðast niðurlægingarsaga einnar konu sem aldrei hefur unnið hjá banka svo lesandi viti og getur varla talist mikið samsekari en þeir sakleysingjar sem reynt var að gera samseka með því að benda á flatskjána þeirra. En það sem Steinar Bragi byggir svo meistaralega hér er fangelsi Evu, þetta fangelsi eigin hugsana, örvæntingar og komplexa sem Eva er að vinna í því að losa sig úr þegar fangelsið verður svo skyndilega raunverulegt.

Þetta er fangelsi sem rímar ískyggilega við það fangelsi sem Íslendingar upplifa núna, Ísland loksins orðið að fanganýlendunni úr Veröld ný og góð (e. Brave New World) Huxleys, og þótt þetta fangelsi sé, rétt eins og fangelsi Huxleys, aðeins barnaleikur miðað við ómannlegar fangabúðir og útrýmingarbúðir mannkynssögunnar þá er það svo óþægilega kunnuglegt og framandlegt um leið. Jú, við erum ekki vön þessum rimlum en við könnumst samt svo fjandi vel við þá út af því við unnum á smíðaversktæðinu, jafnvel við sem ekkert smíðuðum sjálf. Eða eins og það er orðað svo vel á bókarkápu; „... og milljörðum eftir óskiljanlega milljarða sem rísa eins og rimlar umhverfis þegna landsins.“

Heittrúarsiðferði Eðvarðs Ingólfssonar

Bókin er þó langt í frá fullkomin þótt í henni sé einhver galdur sem yfirvinnur marga veikleika hennar og heildin sé í raun mun sterkari en einstakir þættir sögunnar. Nafnið passar sögunni til dæmis aldrei almennilega, aðalpersónan Eva og stærstu aukapersónurnar eru vissulega konur en það þarf að seilast ansi langt til þess að halda því fram að um sé að ræða erkitýpískar konur né að verið sé að kanna kvenleikann sérstaklega, nema þá hugsanlega á þann hátt að hér verði kvenleikinn, hið mjúka, undir hinu karllæga, hinu harða – og það er rétt svo langt sem það nær og hlutföll kvenna í stjórnum banka ljúga engu um umkomuleysi kvenna í þeim heimi þar sem þær þurftu í það allra minnsta að 15araklæðast karlafötum (eða dragt eins og það kallast víst) til þess að vera teknar alvarlega. Og það má finna meinhæðin spegil á  komplexa ófárra stúlkna af ákveðinni kynslóð í þessum orðum; „... fannst eins og hún væri föst í unglingabók eftir Eðvarð Ingólfsson, sveitaprestinn sem hafði einhvern veginn tekist að smygla ofan í hana heittrúarsiðferði sínu og nítjándualdar kynhlutverkum þegar hún var níu eða tíu ára ...“ En við strákarnir lásum líka Eðvarð þótt við færum fínna í það og þetta eru líka okkar komplexar, mörkin á milli hins karllæga og kvenlega eru miklu óljósari en þetta. Enda held ég að Konur verði seint strákabók eða stelpubók, það ættu bæði kyn að upplifa svipaða samkennd með Evu í kröggum hennar.

Samt þótti mér aldrei sérstaklega vænt um hana né kannaðist ég við mikið af sjálfum mér í henni. Persónan er til þess að gera litlaus, það er erfitt að vera eitthvað illa við hana rétt eins og það er erfitt að elska hana. En samkenndin sprettur upp úr því að vera fastur í þessu sama fangelsi, því að vera leiksoppur þeirra sem við töldum að kæmu okkur ekki við, þeirra sem auðguðust á því að deyfa okkur og svæfa á meðan þeir létu okkur vinna fyrir okkur í þeirri fullvissu að þessi frábæra samtíð hefði eitthvað með okkur að gera, þeirri blekkingu að annað hvort værum við stödd í partíinu eða alveg að fara að fá boðskortið. Og þótt syndaregister okkar sé nauðaómerkilegt við hlið alvöru skúrka þá deilum við með þeim þessum járnkalda hrolli rimlana sem þeir reystu okkur.

Eins tekst Steinar Bragi á við listina, hvernig hún snérist gegn sjálfri sér, hvernig hún kóaði með þegar hún þóttist vera í andstöðu, hvernig hún var tekin úr sambandi þannig að það sem átti að vera gagnrýni, háð, spéspegill eða kaldhæðni varð alltaf á endanum samsek á einhvern hátt, hversu einlægur sem listamaðurinn kunni að vera – og það er ómögulegt annað en að spyrja sig hvort Steinar Bragi sjálfur sé hér á einhvern hátt samsekur, ef hann væri að fremja einhverja aðra list en að skrifa skáldsögu ... en um það væri hægt að skrifa langa ritgerð en þá væri ég líka að segja of mikið fyrir þá sem enn eiga eftir að lesa.

En ég talaði áður um von. Þetta er bók án vonar, hér er ekki ort um nýtt upphaf heldur er aðeins fjallað um endalokin. „Framtíðin var ekki lengur í hennar höndum, líf hennar ekki á hennar ábyrgð.“ (117) Þetta er líklega tilfinning ófárra þegar þeir treysta sér ekki lengur niður á Austurvöll að berjast gegn kerfi sem hopar lítt þótt innviðir þess séu ryðgaðir og fúnir, því það er innbyggt í það að við veikjumst alltaf aðeins meira en kerfið. Og hér skal játast að hingað til hefur mér alltaf þótt ljóður á verkum ef enga von er þar að finna, heimsósóminn aðeins tilgangslaus, innihaldsrýr töffaraskapur. En það er von. Steinar Bragi er búinn að sýna okkur fangelsið okkar. Nú er það okkar að brjóta rimlana og sökkva byggingarefni þeirra á hafsbotn.

Ásgeir H Ingólfsson

seinna í dag birtist svo systurdómur um breskt kreppuverk hér á Smugunni, kíkið endilega í heimsókn aftur þá.

Forlagaflakkarinn Steinar

Steinar Bragi er nú nýgenginn til liðs við Mál og menningu, sem mun gefa Konur út í kilju á næstunni. Það er spurning hvort bókin hafi ekki slegið Íslandsmet í forlagaflakki á þetta skömmum tíma því fyrst heyrðist af henni úr höfuðstöðvum Bjarts sem var að fara að gefa hana út þangað til slitnaði upp úr rétt áður en prentsmiðjurnar fóru af stað. Þá fékk sagan athvarf hjá Nýhil áður en Mál og menning tók við kiljuútgáfunni. Lengst af hefur Steinar Bragi þó gefið út hjá Bjarti – með stöku hliðarspori hjá Nýhil – en hann hóf þó ferill sinn hjá Nykri (hinum fyrri, fyrir endurvakninguna).

Tengt efni

Senda grein

Athugasemdir (2)

  1. VoloBiaffaf skrifar:

    <a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1662174/>inderal serious advers effects</a> , canada inderal buy

    7.6.2010, kl. 9:56 | #

  2. kictEntaica skrifar:

    <a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1669214/>what kind of drug is inderal</a> , directions for taking inderal
    <a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1669727/>imitrex inderal</a> , inderal la 60 doseage panic attacks
    <a href\=http://shine.yahoo.com/channel/none/buy-inderal-online-1669891/>what is inderal for</a> , skipping heart beat inderal

    8.6.2010, kl. 0:26 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica