Vefrit um pólitík og mannlíf
11. mars 2010

Þorsteinn frá Hamri og atviksorðin

24. desember: Ljóða-jóla-dagatal Smugunnar

24.12.2008 14:00 Bækur

hvert-ord-er
hvertorderatvik

Hauslausi (og ofstuðlaði) herramaðurinn Hamsun er mættur í lokaglugga ljóða-jóla-dagatalsins og fylgist nú með Þorsteini frá Hamri lesa upp ljóð fyrir okkur á aðfangadag. Þorsteinn gaf út bókina Hvert orð er atvik og úr henni fáum við að heyra „Þagnargildi“, „Veghús“ og „Breið vötn“. Og með þessum orðum Þorsteins bíður Smugan ykkur öllum gleðileg jól með bestu óskum um góðra pakka, hjartnæm jólakort og dýrindis hangikjöts / rjúpu / hamborgarahrygg / svínasteik!




Myndataka: Ásgeir H Ingólfsson

Senda grein

Athugasemdir (3)

  1. Brandur skrifar:

    Ásamt Matta Jóh þá er Þorsteinn frá Hamri eitt ofmetnasta ljóðskáld íslenskra bókmennta.

    Hann er einnig líklega leiðinlegasti skáldsagnahöfundur norðan Alpa, fyrr og siðar.


    27.12.2008, kl. 17:18 | #

  2. Árni Gunnarsson skrifar:

    Þorsteinn frá Hamri er eitt snjallasta ljóðskáld þjóðarinnar. Ljóð hans eru hrein og tær og frásögnin skýr. Mannleg hlýja og skilningur opinberast hverjum manni, sem les ljóð hans. Þau eru mannbætandi í margvíslegum skilningi. Þorsteinn frá Hamri verður seint ofmetinn.

    28.12.2008, kl. 15:44 | #

  3. Brandur skrifar:

    Höfuðeinkenni íslenskrar umræðu: Staðhæfingar gegn staðhæfingum.

    Það sem þú kallar tærleika og skýrleika kalla ég, í sambandi við ÞH, smáborgarlegan fausklegan tómleika, værðarlega deyfð, menntað andleysi.

    Það sem þú kallar "mannlega hlýju" kalla ég kæfandi mollu.



    27.1.2009, kl. 14:04 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica