Afmælisbarn flytur ljóð
22. desember: Ljóða-jóla-dagatal Smugunnar
Upplesari dagsins er sömuleiðis afmælisbarn dagsins, en hann Kári Páll Óskarsson verður 27 ára í dag og því eins gott að hann er ljóðskáld en ekki rokkstjarna – ennþá. Hann gaf út bókina Oubliette á vordögum 2007 og í haust kom út safn ljóðaþýðinga í tengslum við ljóðahátíð Nýhils, Gáttir, sem Kári ritstýrði. En nú er röðin komin að annarri frumortri bók, Með villidýrum. Hér les hann fyrir okkur „Ljárinn“ og „Opið bréf til Georges Bataille“.
Myndataka: Atli Sigurjónsson


Skrifa athugasemd