Kvöldbænir á langri nóttu
21. desember: Ljóða-jóla-dagatal Smugunnar
Magnús Sigurðsson hefur rithöfundaferil sinn ekki bara með einni bók heldur tveimur, sem báðar koma út í þessu jólabókaflóði. Fyrst kom út smásagnasafnið Hálmstrá og skömmu síðar fréttist að Magnús hefði hlotið Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir bókina Fiðrildi, mynta og spörfuglar Lesbíu, þar sem blandað er saman frumsömdum og þýddum ljóðum – en áður hafði Magnús einmitt fengið viðurkenningu fyrir þýðingar sínar á ljóðskáldinu Ezra Pound. Og nú á stysta degi ársins mun Magnús flytja okkur tvær kvöldbænir.
Myndataka: Atli Sigurjónsson


Skrifa athugasemd