Refir og moldvörpur úr Kópavogi
20. desember: Ljóða-jóla-dagatal Smugunnar
Emil Hjörvar Petersen er ungt Kópavogsskáld sem var í lykilhlutverki í endurreisn ljóðaútgáfunnar Nykurs nú fyrir rúmum tveimur árum. Þá gaf hann út bókina Gárungagap og nú skrifar hann um svikula refi í bók þeim samnefnd, Refur. Emil er bókmenntafræðingur að mennt og vakti nokkra athygli síðasta sumar fyrir að koma Sigur Rós á forsíðu Tímarits Máls og menningar þegar hann skrifaði lærða grein um vonlensku þeirra félaga í ritið. Emil flytur okkur hér ljóðin „Úthreinsunarspeglun“, „Moldvörpustarfsemi“ og „Várefur“.
Myndataka: Atli Sigurjónsson


Skrifa athugasemd