Eiríkur Örn og Ginsberg
18. desember: Ljóða-jóla-dagatal Smugunnar
Það er ljóðelskum landanum vitaskuld þung þraut að bíða í heila viku í viðbót eftir því að opna jólapakkana með bók uppáhaldsljóðskáldsins. En Smugan mun létta ykkur biðina með því að gefa ykkur forskot á sæluna og munu íslensk samtímaskáld lesa upp úr nýjum verkum upp á hvern einasta dag fram að ljóðum, afsakið jólum – og ef þið hagið ykkur vel er aldrei að vita nema þið fáið tvö ljóðskáld í skóinn einhverja dagana.
En eins og segir í kvæðinu þá kom Allen Ginsberg fyrstur, stinnur eins og tré. Á eftir honum kemur Eiríkur Örn Norðdahl, en hann les raunar upp fyrir þá kumpána báða.
Myndataka: Atli Sigurjónsson
Fyrst les Eiríkur „Drepum eyra van Goghs (brot)“ eftir Ginsberg – úr þýðingu sinni a verkum hans, Maíkonungurinn, og í kjölfarið les hann upp „Swing Ding“ sem finna má í textaformi í Þjónn, það er Fönix í öskubakkanum mínum sem kom út í fyrra, og í hljóðformi í bókinni Ú á fasismann sem kom út á dögunum.
Eiríkur varð þrítugur í ár en eftir hann liggja þó nú þegar sex ljóðabækur, tvær skáldsögur, átta þýðingar og ein ritstýrð bók og að auki hefur hann verið flestum duglegri við gerð ljóðamyndbanda og á heimasíðu hans má finna ýmis ljóð, þeirra nýjust Kreppusonnettu og Riddara niðurrifsins.
Tenglar

Skrifa athugasemd