Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Viska fjöldans

30.6.2010 18:17 Bækur

Gunnar-Hersveinn

Gunnar Hersveinn, rithöfundur og heimspekingur, vinnur nú að bók um þau tólf gildi sem valin voru á Þjóðfundinum 2009. „Mér fannst algjör skortur á umfjöllun eða umræðu í fjölmiðlum um þessi grunngildi. Það hafði orðið undir í endalausum umræðum um aðalfundi,“ segir Gunnar Hersveinn, en þetta er þriðja bókin sem hann skrifar um gildi.

„Það var viska fjöldans sem valdi eftir umræður og ákveðna aðferð, þannig að það má segja að það sé búið að velja fyrir mig efnið. En ég sem höfundur bókarinnar hef frjálsar hendur til að nálgast þetta. Ég beiti svokölluðum skapandi fræðiskrifum, þar sem ég leita í heim heimspekinnar og siðfræðinnar en hef frelsi til að halda áfram með það,“ segir Gunnar Hersveinn heimspekingur sem situr nú og ritar bók um þau 12 gildi sem voru vinsælust á Þjóðfundinum í nóvember 2009, en bókin kemur út í haust.

Gildin sem þjóðin valdi

En hvernig byggir Gunnar Hersveinn bókina upp? „Ég er að vinna eftir ákveðnum ramma sem ég hef sett upp. Ég tek tvö gildi og kræki þeim saman, eins og til dæmis kærleikur og fjölskylda, og svo hef ég sett mér það markmið að svara ákveðnum spurningum í kringum það. Gera grein fyrir hugtakinu, stöðu þess í nútímanum, hvaða hindranir má greina, hver er andhverfa þeirra, hvaða mælikvarða má setja á þau.“ Gildin tólf sem um ræðir eru heiðarleiki, jafnrétti, virðing, réttlæti, kærleikur, ábyrgð, frelsi, sjálfbærni, lýðræði, fjölskylda, jöfnuður og traust, en þá mun hófsemdin einnig koma við sögu í bókinni.

Sjónarhornið skiptir máli

En það er ekki sama hvernig horft er á gildin. „Sjónarhornið skiptir miklu máli, til dæmis frelsi, það skiptir öllu hvaða sjónarhorn er tekið á það. Er það hugsað út frá mannlegum mælikvarða eða markaðshyggju? Er notað hefðbundið sjónarhorn, kynjafræðisjónarhorn eða eitthvað annað? En það þarf alltaf að segja eitthvað nýtt eða finna nýtt sjónarhorn á hugtökin. Þannig að það verður ekki bara verið að gera grein fyrir hvað allir hafa sagt um hugtökin áður, heldur líka hvernig getum við nálgast þau núna, það skiptir svo miklu máli hvaða sýn við höfum á þetta.“

Handbók fyrir heimili og fyrirtæki

Bókin ætti að hafa víða skírskotun að sögn Gunnars. „Markmiðið er líka hagnýtt, að bókin geti verið á einhvern hátt hagnýt því ég veit að einstaklingar, hópar og fyrirtæki hafa verið að skoða þessi hugtök og velt fyrir sér: hvernig getum við innleitt þessi hugtök í fyrirtækið okkar, hópinn okkar? Þannig að þessi bók getur líka verið handbók fyrir þá sem vilja vinna meira með gildin.“

En snertir hún á ástandinu núna, tveimur árum eftir bankahrun? „Algjörlega. Það er unnið út frá stöðunni sem er núna og gert grein fyrir því hvaða gildum Íslendingar hafa verið hrifnir af í gegnum tíðina. Þjóðfundurinn varð náttúrulega í kjölfar hruns og þetta er hluti af endursköpun Íslands og bókin á að vera innlegg í þá umræðu.“

Knýjandi þörf

Þetta er þriðja bók Gunnars Hersveins þar sem gildi eru í aðalhlutverki. Fyrst kom Gæfuspor – gildin í lífinu og seinna Orðspor – gildin í samfélaginu. „Ég hef verið að vinna mikið með gildi síðustu 20 ár og þess vegna fellur það mér vel að skrifa þessa bók, þetta er ögrandi verkefni. Gæfuspor var skrifuð óháð ástandi, meira um gildi einstaklingana, Orðspor er hins vegar að hluta til greining á samfélagi sem við vildum ekki og gagnrýni á það. Ég geri mér ekki alveg grein fyrir því ennþá hvort nýja bókin muni kallast á við þær eða ekki. Ég veit ekki alveg svarið, hún var unnin allt öðruvísi, út frá knýjandi þörf að vinna með þetta áfram.“

En hvað fær mann til að spá í gildi í heil tuttugu ár? „Það var út frá tíðarandanum, mér fannst algjör skortur á umfjöllun eða umræðu í fjölmiðlum um þessi grunngildi. Það hafði orðið undir í endalausum umræðum um aðalfundi. Þannig að ég fann bara knýjandi þörf fyrir að bæta við einhverri rödd. Svo fékk ég mjög góð viðbrögð, sem var það hvatning til að halda áfram á þessari braut.“

 

Ásgeir H Ingólfsson

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica