Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Úr Dagvaktinni á bókmenntavaktina

11.6.2010 10:40 Bækur

HerraRos

„Herra Rós talar eingöngu við sjálfan sig og þá oftast um stjórnmál. Stundum er hann sammála, stundum ekki. Haraldur Sigfússon á sér þann draum að búa í piparkökuhúsi og á fimmtugsafmæli sínu tilkynnir hann að það sé loksins komið að því.“ Þannig er tveimur sagnanna í Stórkostlegt líf Herra Rósar – og fleiri sögur af ótrúlega venjulegu fólkilýst, en bókin er frumraun leikarans Ævars Þórs Benediktssonar í bókaskrifum, en hann þekkja líklega flestir sem sveitapiltinn unga og sakleysislega sem á vingott við Georg Bjarnfreðarson í Dagvaktinni, en Ævar hefur stundað nám við leiklistardeild Listaháskólans.

Bókin mun koma út hjá Nykri innan skamms og hér eru nokkur dæmi um fleiri sögur í bókinni:

„Jón Jónsson er venjulegasti maður landsins samkvæmt meðaltali og Gunnar er til í tveimur eintökum. Einhvers staðar, efst á hárri byggingu, stendur ónefndur maður á brún og horfir niður. Hann ætlar sér að stökkva en það eru ákveðnir hlutir sem verða að gerast áður. Svo er það stelpan sem vinnur í kirkjugarðinum, hún hreinlega lifir fyrir miðvikudaga. Á miðvikudögum er nefnilega kveikt á líkbrennsluofnunum og allur kirkjugarðurinn angar af vöflum.

Hér má einnig finna sögur af svaðilförum flatbökusendils, minnisleysi, mannáti, óhappdrætti, skuggaskorti og manninum sem býr til vísbendingar fyrir Jóladagatal Sjónvarpsins.“

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica