„Svo logaði allt fjallið“
Áhugi erlendra manna á eldgosum í Eyjafjallajökli er ekki með öllu nýtilkominn. Veturinn 1612-13 var tékkneskur ferðamaður, Daniel Vetter, á ferð hérlendis og skrifaði þetta um eldgos í Eyjafjallajökli:
„Margt er og annarra stórra fjalla, þar sem einnig gjörast ýmis sérstök og undarleg fyrirbrigði. Eitt þeirra er sextán mílur frá Skálholti; þar bar svo til veturinn 1613, að á því dundu látlaust reiðarþrumur og hræðileg högg þrjá daga, líkt og skotið væri úr einhverjum óskaplega stórum og mörgum fallstykkjum. Svo logaði allt fjallið, og eldurinn stóð upp af tindinum eins og kyndill, og féll það og rann með feiknarlegum dunum og dynkjum ofan í mikið vatn, sem þar var hjá, þrjátíu faðma á dýpt, og brenndi það og þurrkaði upp. Svo fyllti gjallið djúpið af gjalli og brenndu grjóti.“
Ferðasögu Vetters má svo finna í heild sinni í bókinni Ísland: ferðasaga frá 17. öld, sem þau Hallfreður Örn Eiríksson og Olga María Franzdóttir þýddu og Sögufélagið gaf út árið 1983.


Skrifa athugasemd