Gunnar Hersveinn, rithöfundur og heimspekingur, vinnur nú að bók um þau tólf gildi sem valin voru á Þjóðfundinum 2009. „Mér fannst algjör skortur á umfjöllun eða umræðu í fjölmiðlum um þessi grunngildi. Það hafði orðið undir í endalausum umræðum um aðalfundi,“ segir Gunnar Hersveinn, en þetta er þriðja bókin sem hann skrifar um gildi.
Lesa meiraSpássían er nýtt menningartímarit sem kemur út í fyrsta skipti á morgun. Ritið mun koma út ársfjórðungslega og meðal efnis í fyrsta blaðinu er ítarleg umfjöllun um The Wire og hvernig þættirnir tengjast borgarmálum, viðtal við Hermann Stefánsson rithöfund og Kolrössu krókríðandi og ýmis konar umfjöllun um bækur, kvikmyndir, tónlist og leikhús. Ritstýrur eru þær Auður Aðalsteinsdóttir og Ásta Gísladóttir.
Lesa meira
Ljóðskáldið Bjarni Bernharður segir smásagnasafn sitt, Spunaþræði úr tilverunni, hörkuspennandi bók. Hann sýndi blaðamanni káputexta eftir Hrafn Jökulsson sem hefst á þessum orðum: "Hér er ekki fjasað um smámuni." Bjarni Bernharður segist hinsvegar vilja taka bækur eftir Guðberg Bergsson með sér í sumarfrí. Theresa O'Brien í Eymundsson mælir hinsvegar með morgnum í Jenín í sumarfríið en það er hægt að ferðast til margvíslegra áfangastaða gegnum bóklestur þótt ekkert sé farið.
Aðfaranótt mánudags var óvæntur gjörningur í Hagkaupi í Garðabæ þar sem blaðamaður las upp úr ljóðabók sem byggð er á rannsóknarskýrslu Alþingis. Ljóðaupplesturinn var ekki stoppaður en myndatökur bannaðar.
Lesa meira
Nýlega kom út bókin Out of this Earth: East India Adivasis and the Aluminium Cartel eftir Felix Padel og Samarendra Das, en hin síðarnefndi kom til Íslands sumarið 2008 á vegum Saving Iceland og er væntanlegur aftur í haust á vegum tímaritsins Róstur.. Þeir félagar hafa eytt síðustu árum í rannsóknir á áliðnaðinum á alþjóðavísu, auk þess að vinna með frumbyggjum Odisha héraðsins (áður Orissa) á Indlandi. Rithöfundurinn Arundhati Roy ritar inngang að bókinni sem er gefin út af Orient BlackSwan.
Nýtt borgarfulltrúatal kemur út núna í vikunni um borgarfulltrúa áranna 1986-2010. Alls eru um 130 borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar í bókinni, sem Gunnar B. Eydal ritstýrði og fæst í Ráðhúsinu. Nýkjörnir borgarfulltrúar eru þó ekki í bókinni, nema þeir sem voru endurkjörnir.
Lesa meira
Smásagnasafnið Stórkostlegt líf herra Rósar er væntanlegt frá Nykri, eftir Ævar Þór Benediktsson leikara, sem margir þekkja sem sakleysislegan sveitapilt í Dagvaktinni.
Lesa meira
Skáldsagan Bankster eftir Guðmund Óskarsson kemur út í Þýskalandi á næsta ári en Ormstunga hefur selt þýðingarréttinn til þýska forlagsins Frankfurter Verlagsanstalt.
Lesa meira
Gagnrýnandi The Economist fjallar um Wasteland With Words, nýja bók Sigurðar Gylfa Magnússonar um félagslega sögu Íslands, og virðist ágætlega sáttur en saknar þó ítarlegri umfjöllunar um kynlíf, hrútspunga og harmleiki.
Lesa meira