Haukur Már Helgason er þessa dagana að vinna að heimildamynd um nímenningana sem ákærðir hafa verið fyrir árás á Alþingi. Þótt málið sjálft sé rakið leggur Haukur Már áherslu á að þetta sé ekki eiginleg fréttamynd, myndinni sé fyrst og fremst ætlað að vera portrett af fólkinu sem um ræðir. „En kvikmyndin sem miðill bíður oft upp á ákveðið rof í semhengi orðanna.“
Lesa meiraSpássían er nýtt menningartímarit sem kemur út í fyrsta skipti á morgun. Ritið mun koma út ársfjórðungslega og meðal efnis í fyrsta blaðinu er ítarleg umfjöllun um The Wire og hvernig þættirnir tengjast borgarmálum, viðtal við Hermann Stefánsson rithöfund og Kolrössu krókríðandi og ýmis konar umfjöllun um bækur, kvikmyndir, tónlist og leikhús. Ritstýrur eru þær Auður Aðalsteinsdóttir og Ásta Gísladóttir.
Lesa meira
Æringur er farandlistahátíð sem mun hefja för sína á Stöðvarfirði um helgina, þar sem fyrsti Æringurinn fer fram, en sá næsti verður í Bolungarvík að ári. Hópur listamanna hefur dvalið undanfarið á Stöðvarfirði og kynnst bæjarbragnum og munu vinna með hann í verkum sínum.
Lesa meira
Ljóðskáldið Bjarni Bernharður segir smásagnasafn sitt, Spunaþræði úr tilverunni, hörkuspennandi bók. Hann sýndi blaðamanni káputexta eftir Hrafn Jökulsson sem hefst á þessum orðum: "Hér er ekki fjasað um smámuni." Bjarni Bernharður segist hinsvegar vilja taka bækur eftir Guðberg Bergsson með sér í sumarfrí. Theresa O'Brien í Eymundsson mælir hinsvegar með morgnum í Jenín í sumarfríið en það er hægt að ferðast til margvíslegra áfangastaða gegnum bóklestur þótt ekkert sé farið.
Nú í dag þegar Gylfi á að vera að gæta hagsmuna almennings er manni spurn hvað Gylfi gerir þegar hagsmunir almennings og hagsmunir fjárfesta fara ekki saman?
Lesa meira
Samfylkingin hefur skilgreint sig sem Evrópuflokk og reiðir sig nú algerlega á VG til að halda aðildarviðræðum við ESB til streitu. Það ætti að setja Vinstri græn í nýja stöðu í stjórnarsamstarfinu og greiða fyrir róttækari áherslum flokksins.
Lesa meira