Hvernig lítur femínisti út?
Já hvernig lítur hann eiginlega út? Þetta myndband svarar þeirri spurningu á skemmtilegan hátt og miðar um leið að því að útrýma í eitt skipti fyrir öll þeim kjánalegu kreddum um útlit og atgervi femínista sem margir skýla sér bak við enn þann dag í dag til þess að þurfa ekki að takast á við þá staðreynd að kynjamisrétti er enn til staðar í samfélaginu.
