Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Blaðamennska í kreppu

Málþing á Kornhlöðuloftinu í kvöld

28.5.2009 13:10 Tilkynningar

dagblod

Blaðamannafélag Íslands boðar til málþings um blaðamennsku í kreppu í kvöld. Framkvæmdastjóri Alþjóðasamtaka blaðamanna ávarpar gesti og veltir upp spurningum um ábyrgð blaðamanna. Fundurinn er opinn öllum áhugafólki um fjölmiðla.

Tilkynning:

Blaðamannafélag Íslands heldur málþing undir yfirskritinni Blaðamennska í kreppu á á Kornhlöðuloftinu fimmtudaginn 28. maí klukkan 20.00.  Aidan White framkvæmdastjóri IFJ Alþjóðasamtaka blaðamanna ávarpar málþingið og ræðir um áhrif efnahagskreppunnar á blaðamennskuna og veltir upp spurningum um ábyrgð blaðamanna.  Að loknu ávarpi sínu mun hann svara spurningum.

Þá mun Ómar Valdimarsson blaðamaður til 40 ára, velta upp spurningunni hvort blaðamennskan hafi orðið betri eða lýðræðislegri með tímanum.  Í framhaldinu verður pallborð um blaðamennsku, efnahagskrísuna og ábyrgð blaðamanna.  Þátttakendur eru: Jónas Kristjánsson, Björn Vignir Sigurpálsson og Sigurður Hreiðar Hreiðarsson. Fundarstjóri verður Svanborg Sigmarsdóttir, blaðamaður.

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica