Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Segja Útlendingastofnun brjóta lög

Stuðningsfólk hælisleitenda segja stofnunina stunda rógburð

15.5.2009 20:34 Tilkynningar

thingsetning-motaeli-haelisleit
Tilkynning vegna setuverkfalls í Dómsmálaráðuneytinu:

Hichem Mansri er á 24. degi hungurverkfalls. Hann hefur líkt og aðrir flóttamenn sem sótt hafa um hæli hér á landi beðið í óratíma í algjörri óvissu eftir svörum frá yfirvöldum. Ólíkt öðrum þó gleymdi Útlendingastofnun máli hans í heilt ár án þess að opna það og fráleitt er að tala um jafnræðisreglu í máli Hitchem eftir að hann hefur orðið fórnarlamb mistaka innan stjórnsýslunnar.

Enn fremur hefur Útlendingastofnun gerst sek um alvarlega glæpi við vinnslu máls Hitchems, þó í því sé jafnræðisreglunni hlýtt og allir flóttamenn sem hingað hafa leitað, hafa líkt og Hitchem orðið fórnarlömb glæpastarfsemi Útlendingastofnunnar á einn eða annan hátt. Stofnunin hikar ekki við að brjóta gegn landslögum, mannréttindasáttmálum eða öðrum alþjóðlegum samningum sem bundnir eru í íslensk lög líkt og Dyflinnarreglugerðin, en þó alltaf og aðeins til þess að brjóta enn frekar gegn þeim mönnum og konum sem í neyð hafa leitað á Íslands náðir.

Við krefjumst þess að Dómsmálaráðuneytið, sem Útlendingastofnun annars heyrir undir, hætti að láta glæpi stofnunarinnar sem vind um eyru þjóta og rísi undir ábyrgð sinni. Við krefjumst þess að Dómsmálaráðuneytið grípi nú þegar til aðgerða og hefjist handa með því að koma í veg fyrir dauða Hitchem Mansri og veiti honum fullt dvalarleyfi tafarlaust.

______________

Vegna frétta af rógburði Útlendingastofnunnar um Hichem síðustu daga:

Af augljósum ástæðum geta flóttamenn - menn á flótta - þurft að grípa til þess að ferðast undir öðrum nöfnum en sínum eigin eða með ólöglega pappíra, enda er í mannréttindasamningum sem bundnir eru í íslensk lög tekið fyrir að slíkt sé notað gegn flóttamönnum í meðferð umsóknar um hæli (t.d. 31.gr. V. Kafla Samnings um réttarstöðu flóttamanna - viðauki við Mannréttindasáttmála SÞ), sem og í Dyflinnarreglugerðinni (9.gr. III. Kafla). Þetta veit Útlendingastofnun enda notar hún þetta aðeins í áróðri sínum, en stofnunin hundsar þannig lögbann opinberra stofnanna og starfsmanna við að tjá sig um persónu eða einstök mál skjólstæðinga sinna.

Enn gerist Útlendingastofnun sek um að brjóta lög þegar hún lekur upplýsingum um, og staðfestir síðar, að Hichem eigi yfir höfði sér dóm í heimalandi sínu Alsír. Þetta geta ekki verið neinar nýjar upplýsingar en þrátt fyrir vitneskjuna um „glæpinn“ átti á dögunum að bjóða Hichem tímabundið dvalarleyfi og getur því ekki verið um að ræða glæp samkvæmt íslenskum lögum. Eins og Jónas Kristjánsson ritstjóri bendir réttilega á hefur glæpur ekki minnstu merkingu í Alsír og pólitískir glæpir gegn ólögum og óstjórn landsins merki um mannkosti og virðingarverða persónu en ekki öfugt.


Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica