Amnesty vill verja Baltic Pride
Ganga samkynhneigðra í Lettlandi á laugardag
Amnesty International hvetur yfirvöld í Lettlandi til að leyfa Baltic Pride göngu á laugardag og tryggja þáttakendum vernd gegn ofbeldi, þeirra sem eru göngunni andvígir. Leyfi fyrir göngunni 16. maí hefur ekki fengist hjá stjórnvöldum og hvetur Amnesty fólk til að skrifa forsætisráðherra Lettlands tölvupóst og hvetja hann til að leyfa gönguna.
Þá bendir Amneysty á að ólöglegt sé að banna gönguna samkvæmt lettneskum lögum. Slíkt myndi einnig brjóta gegn tjáningar- og fundafrelsi samkynhneigðra og transgender fólks.
Gríptu til aðgerða segir Amnesty: verðu Baltic Pride gönguna sem halda á laugardaginn 16. maí

