Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Endurkoma róttækninnar

Fyrirlestraröð um lýðræði, kommúnisma og róttækar breytingar

7.5.2009 10:38 Tilkynningar

bylting

Nýhil kynnir fyrirlestraröð um lýðræði, kommúnisma og rótækar breytingar undir yfirskriftinni „Endurkoma róttækninnar“

Tilkynning:


Sagan er hafin á ný.

Eftir frostavetur frjálshyggjunnar eru hafnar leysingar og heimurinn kallar eftir nýjum hugmyndum um réttlátt samfélag.

Kerfisgallar og eyðileggingarmáttur markaðshagkerfisins birtust skýrt í hruni íslensks efnahags síðasta haust. Á sama tíma vekur snörp andófsbylgja vonir um endurnýjaðan samtakamátt almennings.

Í maí og júní munu fjórir af þekktustu fræðimönnum heims á sviði marxískra rannsókna heimsækja Ísland. Þetta eru Michael Hardt og Antonio Negri, höfundar bókanna Empire og Multitude; Chantal Mouffe, höfundur hugmynda um róttækt lýðræði; og Peter Hallward, einn fremsti fræðimaðurinn í hópi nýrra, róttækra heimspekinga í Evrópu.

Rannsóknir og skrif allra þessara fræðimanna snúast um möguleika róttæks andófs gegn auðvaldi á forsendum lýðræðis, kommúnisma, pólitísks vilja, fjölhyggju og stéttabaráttu. Með heimsóknum þeirra gefst fágætt tækifæri til að ræða þróun og stöðu íslensks samfélags í samhengi við hina alþjóðlegu baráttu fyrir jöfnuði og réttlæti.

Tími róttækra stjórnmála er núna.
 
Dagskrá:
______________________________________________________________________

Michael Hardt:    Kommúnisminn sem hið sameiginlega (The Common in Communism)
Antonio Negri:        Nokkrar hugleiðingar um hugtak og framkvæmd kommúnismans (Some Reflections on the Concept and Practice of Communism)*
Þriðjudagur 26. maí kl. 20:00-22:00
HT102 (salur 102 á Háskólatorgi)
______________________________________________________________________

Peter Hallward:    Hvað er pólitískur vilji? (What is Political Will?)
Fimmtudagur 11. júní kl. 17:00-18:30
O101 (salur 101 í Odda)
______________________________________________________________________

Chantal Mouffe:    Róttæk stjórnmál í samtímanum (Radical Politics Today)
Laugardagur 13. júní kl. 14:00-15:30
HT102 (salur 102 á Háskólatorgi)


Aðgangur er ókeypis á alla fyrirlestrana og boðið verður upp á spurningar og umræður að þeim loknum.

Nánari lýsingar á efni hvers fyrirlestrar verða sendar út sérstaklega þegar nær dregur.

* Fyrirlestur Negris er fluttur á ítölsku en íslenskri þýðingu verður varpað á skjá.  

Nánar um fyrirlesarana
Michael Hardt og Antonio Negri eru heimsfrægir fyrir bækur sínar Empire frá árinu 2000 og Multitude frá 2004 þar sem þeir fjalla um andóf gegn hnattvæddum kapítalisma út frá óhefðbundinni blöndu marxisma og póst-strúktúralisma. Negri er einnig þekktur fyrir róttæka stjórnmálaiðkun á Ítalíu á áttunda áratugnum og var ranglega dæmdur í fangelsi fyrir aðild að morðinu á Aldo Moro, forsætisráðherra Ítalíu. Hardt er prófessor í bókmenntum við Duke-háskóla í Bandaríkjunum og Negri er prófessor í stjórnmálafræði við Padua-háskóla á Ítalíu. Þýðing á köflum úr Empire birtist í 15. tbl. Hugar, tímarits Félags áhugamanna um heimspeki árið 2003.

Chantal Mouffe er einkum þekkt fyrir kenningar sínar um lýðræði, sem eru að hluta settar fram sem gagnrýni á kenningar frjálslyndra stjórnspekinga á borð við John Rawls og Jurgen Habermas en ekki síður sem gagnrýni á aðra vinstrimenn og marxista. Hún skrifaði bókina Hegemony and Socialist Strategy ásamt Ernesto Laclau, en í henni beittu þau kenningum ítalska marxistans Antonios Gramsci á nýstárlegan hátt. Mouffe er prófessor í stjórnspeki við Westminster-háskóla á Bretlandi. Greinin „Til varnar ágreiningslíkani um lýðræði“ birtist í 16. tölublaði Hugar, tímarits Félags áhugamanna um heimspeki árið 2004.

Peter Hallward er þekktur fyrir skrif um franska samtímaheimspeki, sérstaklega bækur sínar um kenningar Alains Badiou og Gilles Deleuze. Hann hefur einnig gefið út gagnrýnið verk um eftirnýlendufræði og nýlega bók um stjórnmál og sögu Haítí auk þess sem hann vinnur nú að rannsókn á pólitískum vilja sem drifkrafti róttækra samfélagsbreytinga. Hallward er prófessor í heimspeki við Middlesex-háskóla í London.

Það er Nýhil sem stendur að heimsóknunum en styrktar- og samstarfsaðilar eru Evrópa unga fólksins, Hugvísindasvið Háskóla Íslands, Heimspekistofnun Háskóla Íslands, Félag áhugamanna um heimspeki, Listaháskóli Íslands og Nýlistasafnið.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.



Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica