Baráttufundur Vinstri grænna
Vinstri græn í Reykjavík bjóða alþýðu borgarinnar í kaffi og á barráttufund að Vesturgötu 7 að loknum útifundi á Austurvelli þann 1. maí.
Tilkynning
VG Í Reykjavík býður alþýðu borgarinnar til kaffisamsætis og baráttufundar 1. maí að Vesturgötu 7.
Dagsskráin hefst að loknum útifundi verkalýðsfélaganna, en þá munu þau Björg Eva Erlendsdóttir og Ari Mattíason flytja ræður, auk þess sem trúbadorinn Svavar Knútur treður upp. Systkinin frá Tjörn í Svarfaðardal, Ösp og Örn Eldjárn, flytja eldheit baráttulög og hinn eini og sanni Reynir Jónasson mun síðan spila undir fjöldasöng á nikkuna. Fundinum stjórnar hin einarða forystukona UVG, Steinunn Rögnvaldsdóttir.


Skrifa athugasemd