Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Skorað á verkalýðshreyfingu 1. maí

Hagsmunasamtök  heimilanna og Húseigendafélagið

30.4.2009 16:41 Tilkynningar

1.mai

Verkalýðsfélög og launþegasamtök verða að taka sér stöðu með heimilum í landinu vegna ört vaxandi fjárhagsvanda þeirra, segir í áskorun í tilefni af baráttudegi verkalýðsins á morgun 1. maí.

Tilkynnning:

Ofangreind hagsmunasamtök, skora á launþegasamtök og verkalýðsfélög landsins að taka afgerandi stöðu með heimilunum í landinu vegna gríðarlegs og hratt vaxandi fjárhagsvanda þeirra, sem er m.a. afleiðing ófyrirsjáanlegra, óeðlilegra og jafnvel ólöglegra hækkana á gengis- og verðtryggðum veðlánum heimilanna í kjölfar efnahagshrunsins.

Um 42% heimila eru með bága eða neikvæða eiginfjárstöðu skv. gögnum Seðlabanka Íslands frá síðustu áramótum.  Allt bendir til að efnahagur þeirra hafi versnað enn frekar frá áramótum og muni halda áfram á þeirri voðabraut, nema gripið verði inn í með almennri leiðréttingu lánanna.  Um 25% heimila landsins eru með gengistryggð veðlán og um 90% þeirra eru í tímabundinni frystingu.  Umsóknum Íbúðarlánasjóðs vegna greiðsluerfiðleika hefur fjölgað um 900% á milli ára.

Forsendur verð- og gengistryggðra lána eru brostnar og þeim heimilum fjölgar ískyggilega hratt sem geta ekki staðið í skilum eða sjá hvorki  tilgang né skynsemi í að greiða af lánum sem hækka stjórnlaust úr öllu valdi .  Kaupmáttur rýrnar óðum og atvinnuleysi er í sögulegum hæðum, sem leiðir til samdráttar í einkaneyslu, sem eykur svo atvinnuleysið enn frekar.

Með samhentu átaki má rjúfa þennan vítahring og snúa þessari óheillaþróun við.  Aukið fjárhagslegt svigrúm heimilanna mun fljótt efla atvinnulífið, draga  úr atvinnuleysi og styrkja afkomu fjármálakerfis, sveitarfélaga og ríkissjóðs.

Undirrituð samtök skora á launþegahreyfingar landsins að knýja á stjórnvöld og kalla eftir tafarlausum almennum leiðréttingum á gengis-og verðtryggðum lánum heimilanna.  Í þessu samhengi er vert að benda á nýlega kynnta sáttartillögu talsmanns neytenda vegna sama vanda.

Skráðir félagar í ofangreindum samtökum eru samtals um 11.000.

Reykjavík, 30.apríl 2009

Virðingarfyllst,

       f.h. Hagsmunasamtaka heimilanna                                f.h. Húseigendafélagsins

       Þórður B. Sigurðsson formaður.                                         Sigurður Helgi Guðjónsson formaður.  

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.



Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica