Kenna stofnun fyrirtækja
Háskólanemar í sjálfboðavinnu gegn kreppu
Nokkrir háskólanemar ætla að bjóða ókeypis kennslu í stofnun fyrirtækja. Þetta er kvöldnámskeið sem stendur í allt sumar og byrjar í maí.
Tilkynning:
Kynningarfundur kl.17 í dag.
Nokkrir háskólanemendur hafa tekið sig saman til að berjast gegn samdrættinum og atvinnuleysinu sem Íslendingar horfast nú í augu við. Þeir hafa ákveðið að fara af stað með frítt námskeið í stofnun fyrirtækja.
Um er að ræða þriggja mánaða námskeið þar sem þátttakendur fara í gegnum allt ferlið við það að stofna fyrirtæki, allt frá því að hugmynd kviknar og þangað til að hugmyndin er orðin að rekstri sem skilar reglulegum tekjum. Kennt verður tvö kvöld í viku og byrjar kennslan 18. maí nk.
Unnið er að því að fá styrktaraðila til að leggja lágmarks hlutafé í fyrirtæki allra þeirra sem útskrifast af námskeiðinu.
Þeir sem skrá sig á námskeiðið hljóta:
• Fræðslu um stofnun fyrirtækja
• Aðstoð við að móta fyrirtækjahugmyndir
• Fyrirlestra frá fagaðilum um sölumennsku, bókhald, markaðssetningu o.s.frv.
• Reynslusögur annarra frumkvöðla
• Fjárhagsstuðning í formi niðurgreiðslu á stofnhlutafé
• Aðstoð við formlega stofnun fyrirtækis
• Aðstoð við að finna ódýrt/ókeypis húsnæði
• Rekstrarráðgjöf
• ECTS námseiningar til háskólagráðu fyrir þá sem skrá sig í viðbótarnámskeið
• Sín eigin fyrirtæki og forræði yfir eigin framtíð J
Námskeiðið er skipulagt af fólki í sjálfboðastarfi og engar tekjur munu verða af því. Skipuleggjendur námskeiðsins eru ekki sérfræðingar á þessu sviði, heldur námsmenn með reynslu af fyrirtækjarekstri. Fengnir verða fagmenn og sérfræðingar til að kafa dýpra ofan málin.
Skráning fer fram því að senda tölvupóst á stofnun@gmail.com.
Í dag, fimmtudaginn 30. apríl kl 17:00 verður haldinn opinn kynningarfundur um námskeiðið. Á fundinum verða viðfangsefni námskeiðsins kynnt og spurningum svarað. Kynningarfundurinn verður í stofu 231a, í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2. Einnig verður opið fyrir skráningu á staðnum.
Gert er ráð fyrir að kennslan hefjist 18. maí og spannar námskeiðið 13 vikur. Námskeiðið stendur öllum til boða sem áhuga hafa á að skapa sér ný tækifæri með eigin atvinnurekstri eða í samvinnu við aðra. Og það er sem fyrr segir þátttakendum algjörlega að kostnaðarlausu.
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir í s. 861-0307

Skrifa athugasemd