Torfusamtökin furða sig á hörku lögreglu
Benda á tvískinnung í framgöngu lögreglunnar
Torfusamtökin furða sig á þeirri hörku sem lögreglan beitti þegar hún fjarlægði hústökufólk úr yfirgefnu húsi við Vatnsstíg í síðustu viku. Fólkið hafi haft það eina markmið að vekja athygli á nýtingarmöguleikum á yfirgefnum og niðurníddum húsum í miðbænum.
Samtökin vekja athygli á því að slíkri hörku sé að jafnaði ekki beitt gagnvart utangarðmönnum sem hafa til lengri eða skemmri tíma hafst við í yfirgefnum húsum en fullri hörku sé beitt þegar hópur fólks sem hefur „það eitt að markmiði að benda á leiðir til bæta umhverfi og samfélag í miðbænum, með því að vekja athygli á nýtingarmöguleikum þeirra fjölmörgu eldri húsa í miðbænum sem standa auð og liggja undir skemmdum vegna sinnuleysis eigenda sinna.“
Tilkynning frá Torfusamtökunum:
Torfusamtökin gera athugasemd við vinnulag lögreglunar við handtöku hústökufólks við Vatnsstíg í sl. viku.
Furðu vekur að slíkri hörku skuli beitt gagnvart aðgerðum hóps sem hafði það eitt að markmiði að benda á leiðir til bæta umhverfi og samfélag í miðbænum, með því að vekja athygli á nýtingarmöguleikum þeirra fjölmörgu eldri húsa í miðbænum sem standa auð og liggja undir skemmdum vegna sinnuleysis eigenda sinna.
Hliðstæðri hörku hefur að jafnaði ekki beitt gagnvart ógæfumönnum sem í lengri eða skemmri tíma hafa tekið sér bólfestu í auðum húsum, enda þótt bæði nágrönnum og húseignunum sjálfum stafi mun meiri ógn af slíkum gestum.
Skipulagsmál í eldri hverfum eru vandmeðfarin og þar takst á ólíkir hagsmunir. Sjónarmið um varðveislu menningarminja og eflingu jákvæðs mannlífs í miðbænum fara ekki alltaf saman við fjárhagslega hagsmuni þeirra sem auðu húsin eiga. Þeir hafa í mörgum tilvikum ótvíræðan hag af hrörnun þeirra, niðurrifi og nýrri uppbyggingu á lóðunum í kjölfarið. Víða í nálægum löndum er slík háttsemi húseigenda refsiverð.
Frá sjónarhóli meðalhófs og jafnræðis verður lögreglan að huga að því hverra hagsmuna hún er að gæta í tilvikum sem þessum.
Það liggur fyrir að ekki er komin formleg niðurrifsheimild fyrir þetta tiltekna hús við Vatnsstíg, en allar ákvarðanir um breytingar eða niðurrif á húsum sem byggð eru fyrir 1918 falla undir lög um húsafriðun.
Torfusamtökin beina þeim tilmælum til lögreglunar að hún gæti að húsum sem hafa minjagildi og standi svo að málum að aðgerðir hennar valdi ekki tjóni á sögulegum minjum.


Skrifa athugasemd