Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Hluthafi í FL-Group fer fram á rannsókn

Ríkislögreglustjóri rannsaki styrk til Sjálfstæðisflokks

9.4.2009 15:49 Tilkynningar

sjalla-falki

Hluthafinn sem krefst rannsóknar, vill láta rannsaka hvort styrkur FL-Group til Sjálfstæðisflokksins sé svo hár og óvenjulegur að hann geti verið lögbrot af þeim sökum. Hluthafinn Finnbogi Vikar, vakti máls á styrknum í framboðsþætti í sjónvarpinu í gær.

Bréf til Ríkislögreglustjóra:


Ríkislögreglustjóri

Skúlagötu 21

101 Reykjavík

Selfossi 9. apríl 2009

Efni: Ósk um opinbera rannsókn.

Undirritaður, Finnbogi Vikar kt: 220878-3849, hluthafi í FL Group, óskar eftir að lögregla hefji rannsókn vegna óvenju hárrar styrkveitingar frá FL Group til Sjálfstæðisflokksins í árslok 2006.

Undirritaður telur að hugsanlega hafi greiðandi, móttakandi og milligöngumaður/milligöngumenn brotið almenn hegningarlög nr. 19/1940, þegar FL Group greiddi Sjálfstæðisflokknum kr. 30.000.000,- þrjátíu milljónir, þann 29. desember 2006. Undirritaður telur telur að sú upphæð sem að framan greinir, sé svo óvenjuleg og há, að hún geti fallið undir brot á hegningarlögum.

Greiðsla þessi átti sér stað áður en lög um fjármála stjórnmálaflokka tóku gildi í ársbyrjun 2007, en sá kafli laganna sem nær til fjármála þátttakenda í prófkjörum tók ekki gildi fyrr en að loknum þingkosningum vorið 2007. Ekki er því kært vegna hugsanlegra brota á þeim lögum.

Um málsatvik hefur undirritaður einungis upplýsingar úr fjölmiðlum. Þau eru með þeim hætti að undirritaður telur að óeðlilega hafi verið staðið að umræddri styrkveitingu. Í fréttaskýringu á bls. 4 í Morgunblaðinu í dag segir að Guðlaugur Þór Þórðarson, þáverandi stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur og borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, hafi haft frumkvæði um að leita til FL Group og biðja um styrkveitinguna. Hafa ber í huga að Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í viðtali í Reykjavík Síðdegis á útvarpstöðinni Bylgjunni þann 8. apríl 2009, að Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið með mjög erfiða og bága fjárhagsstöðu eftir kostnaðarsamar borgarstjórnarkosningar vorið 2006. Í fréttaskýringunni í Morgunblaðinu er þetta áréttað og sett í samhengi við fjárþörf fyrir aðdraganda kosninga til Alþingis vorið 2007.

Undirritaður vekur athygli á að skömmu eftir þessa styrkveitingu hafi farið af stað ferli sem kennt er við REI, Reykjavik Energy Invest. Þar tókust á mjög miklir fjárhagslegir hagsmunir sem vörðuðu samskipti Orkuveitu Reykjavíkur og Geysir Green Energy, sem FL Group var stór hluthafi í og átti afdrifaríkra hagsmuna að gæta.

Undirritaður telur brýnt að lögregla aðhafist snarlega í máli þessu, til þess að gögnum verði ekki spillt. Bendir undirritaður í því samhengi á að nú þegar hafi komið fram misvísandi upplýsingar í fjölmiðlum um það hverjir stóðu að eða vissu um þessar greiðslur.

Virðingarfyllst,

_______________________________________

Finnbogi Vikar, kt. 220878-3849

Afrit sent: Ríkissaksóknara.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.



Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica