Búsáhöldin úr eldhússkápnum?
Vilja „landráðflokkinn“ burt
Enn er sent út kall til fólksins um að taka búsáhöldin út úr eldhússkápnum fjölmenna á Austurvelli til að mótmæla málgleði þingmanna Sjálfstæðisflokksins kölluð er landráð í tilkynningu.
Tilkynning:
Sjálfstæðismenn ætla sér að tala fram að kosningum og koma þannig í veg fyrir að stjórnlagaþing verði sett á fót og að stjórnarskránni verði breytt.
Í því árferði sem nú ríkir þá er það ábyrgðarhluti hvers manns að leggja hönd á plóg og laga það sem aflaga hefur farið. Sjálfstæðismenn hafa hinsvegar engan áhuga á breytingum og vilja þeir bara meira af því sama þ.e. að viðhalda kerfi sem hefur hrunið til grunna.
Við Íslendingum blasir algjört kerfishrun. Sjálfstæðisflokkurinn hefur séð til þess með áralangri vanhæfni sinni. Stofnanir ríkisins eru meira og minna lamaðar eða ónýtar. Það gengur aldrei upp að 25% af þjóðinni (fylgi sjálfstæðisflokks samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum) kúgi hin 75 prósentin. Þjóðin mun aldrei skrifa undir það.
Að ganga gegn þjóð sinni líkt og Sjálfstæðismenn gera nú verður flokkað sem landráð á nýja Íslandi. Því hvetjum við alla til þess að mæta á Austurvöll miðvikudaginn 08.04.09 klukkan 18:00 með trommur og búsáhöld.
Landráðaflokkinn burt!


Skrifa athugasemd