Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Ráðherra fundar með hælisleitendum

Dómsmálaráðherra mun funda með hælisleitendum og stuðningsmönnum þeirra í dag

30.3.2009 7:30 Tilkynningar

ragna-arnadottir

Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra mun funda með flóttamönnum og stuðningsmönnum þeirra í dag. Fundurinn var ákveðinn í gær þegar fjölmennur hópur gekk að heimili hennar og krafðist réttar fyrir hælisleitendur á Íslandi.

Fréttatilkynning

Í dag, þann 30. mars, eiga flóttamenn og stuðningsmenn þeirra fund með dómsmálaráðherra. Fundurinn var ákveðinn í gær þegar um 70 manna hópur gekk frá Lækjartorgi að heimili dómsmálaráðherra til að krefjast réttar hælisleitenda til að setjast að hér á landi og njóta fullra mannréttinda. Meðal göngumanna voru flóttamenn úr flóttamannabúðum á Fitjum í Njarðvík.

Helsta krafa hópsins er sú að dómsmálaráðherra beiti sér fyrir því að Útlendingastofnun setji mannúðarsjónarmið í fyrirrúm og hætti að misnota Dublinarákvæðið til þess að firra sig ábyrgð á vanda flóttamanna. Af þeim 603 einstaklingum sem sóttu um hæli á landinu í góðærinu 1990-2007 hafði einn erindi sem erfiði.

Umfjöllun um málefni hælisleitenda hefur einkennst af skilningsleysi bæði almennings og Útlendingastofnunar á aðstöðu flóttamanna og telja mótmælendur að fjölmiðlar hafi ekki sinnt upplýsingaskyldu sinni í þessum efnum. Það er þó til marks um hugarfarsbreytingu yfirvalda að heimili ráðherra skuli ekki hafa verið umkringt lögreglumönnum á meðan á mótmælum stóð og út af fyrir sig fagnaðarefni að Íslendingar skuli loks hafa eignast viðræðuhæfan dómsmálaráðherra.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.



Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica