Fimm ára hvalakvóti til útvaldra er óhæfa
Verkalýðsfélög fordæma vinnubrögð Einars K. Guðfinnssonar
Sjávarútvegsráðherra tekur sér nokkrar vikur í endurskoðun á reglugerð forvera síns um úthlutun hvalakvóta til næstu fimm ára.
Heitt var í kolum á borgarafundi á Akranesi í gærkvöld, þar sem rætt var um hvalveiðar og þá ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar að úthluta veiðiheimildum vegna hvalveiða næstu fimm árin. Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra, gagnrýndi stjórnsýslu forvera síns.
En mikill meirihluti fundargesta á Akranesi vildi hvalveiðar strax og að ákvörðun Einars K. stæði. Það væri mikilvægt til að skapa störf á erfiðum tímum.
Formannafundur starfsgreinasambandsins, stærsta landssambands verkalýðsfélaga innan Alþýðusambandins, gagnrýnir hinsvegar ákvörðun fyrrverandi sjávarútvegsráðherra harðlega. Hún sé óhæfa.
Skúli Thoroddssen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, segir að það séu vinnubrögð Einars K. Guðfinnssonar sem séu óhæfa, en ekki hvalveiðarnar sé rétt að staðið.
„Gagnrýni okkar er á stjórnsýsluna og á vinnubrögð Einars K. Guðfinnssonar, sem er að hygla sérhagsmunum, “ segir Skúli.
„Reglugerð Einars fjallar til dæmis ekki um hvernig eigi að standa að veiðunum, hvar megi veiða og hvenær, “ segir Skúli, sem bendir á að ekki sé gert ráð fyrir jafnræði, því ekki megi allir hasla sér völl í greininni.
„Úthlutunin er fyrir fáa útvalda, það er þá sem veiddu hval árin 2006 – 2008. Þetta virðist vera skyndiákvörðun tekin á ögurstundu til að hygla sérhagsmunum. Hún gerir ekki ráð fyrir skynsamlegri samræðu við aðra hagsmunaðila, ferðaþjónustuna og hún hindrar nýliðun í greinin næstu fimm árin. Um þetta fjallaði gagnrýnin á Einar K Guðfinnsson,“ segir Skúli Thoroddsen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins.
Ályktun:
,,Formannafundur Starfsgreinasambands Íslands, haldinn 5. febrúar 2009, leggur áherslu á sjálfbæra nýtingu auðlinda í þágu atvinnulífsins og verðmætasköpunar fyrir þjóðarbúið. Ábyrgar veiðar byggja á vísindalegu mati, markvissu eftirliti, hagkvæmni og umhverfissjónarmiðum. Í þessu sambandi eru hvalveiðar einnig mikilvægar, en gæta verður þess að þær veiðar séu stundaðar í sátt og í samráði við ferðaþjónustugreinar og hvalaskoðunarfyrirtæki. Ferðaþjónustan er afar þýðingarmikil og vaxandi frumatvinnugrein á Íslandi, sem á í samkeppni við erlendan markað og þarf á jákvæðri ímynd að halda. Fundurinn telur að vel megi samræma sjónarmið beggja greinanna, þannig að sem flestir geti vel við unað.
Engin umræða hefur átt sér stað í samfélaginu um það hverjir fái að veiða hval, hvenær, hvar og hvernig. Fundurinn fordæmir þess vegna illa ígrunduð vinnubrögð fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, Einars K. Guðfinnssonar, að úthluta völdum einstaklingum hvalveiðileyfum til fimm ára með útgáfu reglugerðar á síðasta starfsdegi sínum. Slíkt er óhæfa.”
