Vefrit um pólitík og mannlíf

9. september 2010
Fréttir

Skríllinn gegn ákæruvaldinu

29.6.2010 9:11 Fréttir

heradsdomur9

Ragnar Aðalsteinsson lögmaður krefst þess að Lára V. Júlíusdóttir settur saksóknari í máli níumenninganna sem eru ákærðir fyrir þátttöku sina i Búsáhaldabyltingunni  víki vegna vanhæfis þar sem hún gegni trúnaðarstörfum fyrir Alþingi á öðrum vettvangi. Lára V. Eru skipuð af Alþingi í bankaráð Seðlabankans.  Sextíu til sjötíu manns fylgdust með þegar taka átti mál níumenninganna fyrir í morgun klukkan hálf níu.Ragnar mótmælti því ennfremur að þinghaldið væri lokað að hluta, en ekki er fleirum hleypt í þingsalinn en geta setið eða staðið þar með góðu móti og lögregla stæði vörð um dómhúsið og stjórnaði ferðum fólks þangað inn.

Þinghaldi var frestað til 17 ágúst en tveir embættisdómarar verða skipaðir í málinu Arngrímur Ísberg og Jón Finnbjörnsson auk Péturs Guðgeirssonar.

Samstöðuatburður með níumenningunum verður haldin í Nýlistarsafninu næstkomandi laugardag klukkan fimm, fjöldi listamanna kemur þar fram meðal annars, Ragnar Kjartansson Kristín Eiríksdóttir og Guðrún Eva Mínervudóttir.

Senda grein

Athugasemdir (2)

  1. Sigurður Hr. Sigurðsson skrifar:

    Tilgangurinn með þessum ákærum er væntanlega að hræða almenna borgara til hlýðni. Eflaust munu sumir hugsa sig um tvisvar áður en þeir stunda frammíköll á þingpöllum líkt og Össur Skarphéðinsson forðum daga áður en hann fékk sjálfur hlutverk á leiksviðinu.

    Þessi réttarhöld gera því miður lítið annað en að draga úr tiltrú almennings á dómstólunum. Jú, og að kosta fúlgur fjár, því að í hvert einasta skipti mætir stór hópur lögfræðinga á vaktina og heill herskari af lögreglumönnum. Og rétt í þessu bættust tveir embættisdómarar við þann eina sem fyrir var.

    29.6.2010, kl. 10:38 | #

  2. Pétur Örn Björnsson skrifar:

    Hjartanlega sammála þér Sigurður.

    Lagatæknar verja vald sitt.
    Þingliðar verja vald sitt.
    Ráðherrar ... það helgislepjulið!

    Valdið lætur finna til máttar síns
    ... og nú þykist það vera til vinstri.
    Hólí móli krapp.

    Og undir þetta tekur Jón Jón Jónsson
    ... að gefnu tilefni ... hinn eini sanni.

    Arngrímur Ísberg ... er það ekki dómarinn sem hæddi saksóknara í Baugs-málinu hinu fyrra. Er hann óvilhallur? Ég bara spyr ... og hef ástæðu og leyfi til. Lög eru sett með baktjalda-völdum. Menn dæma vegna valda ... og einskis annars ... hér hin síðari árin.

    29.6.2010, kl. 12:26 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Frá ritstjórn

thora-kristin

Jóhanna og Jenis av Rana - Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

Lítil frétt um að bókstafstrúaður stjórnmálamaður, Jenis av Rana formaður Miðflokksins í Færeyjum vilji ekki sitja til borðs með Jóhönnu Sigurðardóttur og Jónínu Leósdóttur eiginkonu hennar af því að nærvera þeirra er honum ögrun, er stór frétt því hún vekur upp hugsanir um alla þá sem hafa verið settir hjá í færeysku samfélagi fyrir tilverknað karla eins og hans.

Lesa meira
 



Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica