Meira álag - minni laun
Laun sjötíu prósenta félagsmanna BHM hafa lækkað eða staðið í stað frá því í fyrra. Álag á vinnustöðum þeirra hefur einnig aukist
Fleiri kvarta yfir vaxandi álagi nú en í sambærilegri könnun fyrir ári. Í nýju könnuninni sögðu nær 70% álag hafa aukist á vinnustað síðustu mánuði, en í könnuninni fyrir ári síðan voru það ríflega 60% sem svöruðu á sama veg.
Í tilkynningu frá BHM segir að álag á vinnustað sé meðal helstu áhyggjuefna bandalagsins um þessar mundir. Hvarvetna sé verið að draga saman seglin og víðast hvar undir þeim formerkjum að viðhalda þjónustustigi. Ríkið hafi sett fram leiðarljós um viðmið í aðhaldi á opinberum stofnunum, þar sem meðal annars er mælt fyrir um ráðningarbann.
Ekki sé ráðið í störf sem losna af „náttúrulegum“ orsökum, svo sem við upphaf töku lífeyris eða þegar starfsmenn hætta störfum að eigin ósk. Tímabundnir samningar hafa verið látnir renna sitt skeið án endurnýjunar. Endurskipulagning hafi einnig haft í för með sér uppsagnir í einhverjum mæli, auk þess sem starfshlutfall hafi víða verið fært niður.


Skrifa athugasemd