Valdhæðni
Varastu spjátur, hæðni og hlátur nefnist leiðarinn í nýjasta tölublaði Róstra en þar er fjallað um úrslit sveitarstjórnarkosninganna. Þar segir að þegar almenningur hafi misst trúna á núverandi lýðræðisfyrirkomulag og atvinnustjórnmál hafi ný hæðni komið til sögunnar, valdhæðnin. Valdhæðnir einstaklingar ögra þó ekki kerfinu í reynd að mati leiðarahöfundar, aðgerðarleysið veldur því að róttæknin siglir í strand og valdhafar geta andað léttar.
Varastu spjátur, hæðni og hlátur nefnist leiðarinn í nýjasta tölublaði Róstra en þar er fjallað um úrslit sveitarstjórnarkosninganna. Þar segir að þegar almenningur hafi misst trúna á núverandi lýðræðisfyrirkomulag og atvinnustjórnmál hafi ný hæðni komið til sögunnar, valdhæðnin.
,,Væntanlega kannast færri við valdhæðni en kaldhæðni, enda hefur pólitík á Íslandi ekki gefið færi á almennri útbreiðslu hennar hingað til. Hinn valdhæðni einstaklingur tekur hvorki þátt í grasrótarstarfi né gerir aðrar tilraunir til að ögra grunnstoðum samfélagsins, hvort sem um er að ræða valdatengsl, framleiðsluhætti eða samband hans við umhverfi sitt og vistkerfi. Til að upplifa sjálfan sig sem pólitíkst virkan samfélagsþegn nægir honum að fáránleiki okkar svokallaða lýðræðis sé dreginn fram í dagsljósið. Vantrú á stjórnmálastarfi og óánægju með beitingu valdsins er ekki fylgt eftir með róttækri greiningu og aðgerðum, heldur innihaldslitlum merkjasendingum sem láta aðra vita að hinn kaldhæðni einstaklingur viti betur. Hann upplifir sig sem pólitískt virkan samfélagsþegn sem mun ekki láta blekkjast. Aðgerðarleysið veldur því hinsvegar að róttæknin keyrir í strand; hann heldur ótrauður áfram þegnhlýðni sinni, neyslu og framleiðslu. Valdhafar finna í versta falli fyrir örlitnum óþægindum þegar valdhæðnin fer á flug. Þeir geta þó á sama tíma andað léttar, því þrátt fyrir tímabundna ögrun er enginn að ógna valdi þeirra í raun.“
Róstur er að vanda stútfullt af vönduðum greinum, þar er meðal annars fjallað um atvinnuréttindi útlendinga í greininni Varaskeifur og láglaunavinnuafl, Magma Energy í grein sem nefnist Ísland á útsölu og hugmyndir um söfnun persónuupplýsinga í nafni forvirkra rannsóknarheimilda.
Athugasemdir (3)
-
Þórarinn Einarsson skrifar:
Kæru róttæklingar!
Það er nú samt svona sem byltingin okkar byrjar. Vinsamlegast takið ykkur stöðu! -
Snorri Páll skrifar:
Leiðarann má lesa í heild sinni hér:
http://rostur.org/lei%c3%b0arar-bla%c3%b0sins/4-tbl-%e2%80%93-varist-spjatur-haedni-og-hlatur/ -
Jón Jón Jónsson skrifar:
Það er rétt að allt byrjar einhvern veginn og þannig er byrjað að krafsa í dular- og huliðshjúpinn.
Leiðarinn segir allt sem segja þarf um ríkis-valda-stofnana-kapítalismann (snobb-þjónarnir) í slagtogi við hina fáu ríku, sem stýra öllu enn ... EN snobb-þjónarnir líta ekki við þjóðinni, því \"ríkið er jú ekki þjóðin\" eins og ISG glopraði út úr sér ... óvart ... og afjúpaði ... óvart ... hvað augum ríkis-valda-stofnana-kapítalistarnir líta hinn sauðsvarta almenning.
Úr leiðaranum:
\"... Að benda á núverandi samfélagsmynd og kalla það lýðræði hæðir valdleysi fólks yfir búsvæðum sínum og samfélagi. Undir yfirskyni lýðræðis hefur gagnrýnislaust verið komið á fáræði hinna ríku, stjórnvöld leitast nefnilega fyrst og fremst við að þjóna markaðsöflunum. Þannig hefur hnattvæðingin verið nýtt til þess að tryggja hagsmuni fyrirtækja á kostnað fjöldans með því að einkavæða hið sameiginlega fyrir hin fáu ríku. Afleiðingarnar eru þær að allir kimar samfélagsins hafa verið stofnanavæddir markaðnum í hag, því stefnunni fylgir óumflýjanlega að þjónusta hins opinbera til almennings sé markvisst skorin niður ...\"
Róttækir anarkistar eru bestu, glöggustu og gagnrýnustu samfélagsrýnarnir ... minni á Noah Chomsky ... já, málvísindamanninn ... og heimspekinginn og mest tilvitnaða akademíkerinn út um allan heim ... nema vitaskuld hér á okkar guðsvolaða landi ... hér er örugglega sá mest tilvitnaði einhver viðskipta-lúði í viðskipta- eða heimspekideildinni (sem hafa hér reyndar að stórum hluta verið undirlægjur sinna launagreiðenda og búið til einhver feik-hugtök á færibandi og prófað nemendur úr því efni).
Þursa-pör 4-flokkanna rýna bara í excelinn -og fela heimsku sína- og segja já og amen við öllu sem krafist er af banka-og kvóta-kapítalistunum.
Allt er þetta það sem sauðsvartur almenningurinn tuðar um út um allt.
Eldar munu því loga og bumbur barðar taktfast ... fyrr en síðar ... og ég held að eftirfarandi sé rétt hjá Þórarni Einarssyni:
\"Kæru róttæklingar!
Það er nú samt svona sem byltingin okkar byrjar. Vinsamlegast takið ykkur stöðu!\" ... Já, verum viðbúin og tilbúin!


Skrifa athugasemd