Vefrit um pólitík og mannlíf

3. september 2010
Fréttir

Lokar vinstri stjórnin gluggum?

12.5.2010 9:02 Fréttir

eldgos

 „Ég held að við þurfum að horfast í augu við að sama hætta er uppi hjá okkur eins og jafnan hefur verið þar sem ástand af þessu tagi hefur skapast. Það er reynt að snúa bylgjunni við, reynt að ræna völdum og það má aldrei henda vinstrisinnuð stjórnvöld að gerast valdaræningjar. Við megum ekki taka þátt í að loka gluggum, við eigum að halda þeim opnum, og það sem ég hef haft áhyggjur af síðustu vikur og mánuði er að okkur hafi ekki tekist það sem skyldi – að við höfum um of verið í gamla farveginum hvað leyndarhyggjuna og forræðisstjórnmál áhrærir.“ Þetta segir Ögmundur Jónasson í viðtali í nýju tölublaði Rósturs, en þar talar hann einnig um viðvarandi byltingarástand sem hann lýsir sem galopnu þjóðfélagi „þar sem allir eiga aðgang að umræðunni og leynd sé ekki við lýði.“

Meðal annars efnis í nýju Róstri er grein Hauks Más Helgasonar rithöfundar um Hannes Hólmstein og 30 ára stríð hans og félaga hans um tunguna, Gunnar Theódór Eggertsson skrifar um kvikmyndahátíðina í Þessalóníku í Grikklandi og Helga Katrín Tryggvadóttir skrifar pistil um hamfarir og hagkerfi í kjölfar eldgossins og annan um Árna þátt Sigfússonar í stóriðjuáformum á Suðurnesjum og skuldasöfnun bæjarfélagsins. Blaðið má nálgast víðsvegar á götum bæjarins og í völdum sjoppum og kaffihúsum.

 

 

Senda grein

Athugasemdir (1)

  1. Snorri Páll skrifar:

    Reyndar er Róstur fleirtöluorð orðsins Rósta og fallbeygist því ekki eins og gert er hér að ofan, heldur:

    Róstur, Róstur, Róstum, Rósta.

    Bara svona til að hafa það á hreinu.

    12.5.2010, kl. 9:52 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Frá ritstjórn

thora-kristin

Andarteppusamfélagið - Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

Það þykir ekki tiltökumál lengur hvort ríkisstjórnin sé að springa, það er meira svona eins og að spyrja, hvað er í matinn? Og það þykir heldur ekki tiltökumál að krefjast opinberrar afsökunarbeiðni þótt sjaldnast fylgir hugur máli. Maður fær á tilfinninguna að menn yrðu ánægðir með að fá hvaða afsökunarbeiðni sem er, að ráðherrann viðurkenndi að hafa ekki burstað í sér tennurnar um morguninn eða gleymt að borga í stæði.

Lesa meira
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica