Vefrit um pólitík og mannlíf

9. september 2010
Fréttir

Hóta að rifta Stöðugleikasáttmálanum

22.3.2010 16:49 Fréttir

althingi23

Skötuselsfrumvarpið var tekið af dagskrá Alþingis að kröfu Sjálfstæðismanna síðdegis en sett inn aftur eftir mótmæli nokkurra stjórnarþingmanna. Samtök atvinnulífsins ákváðu á fundi í dag að hóta að segja upp stöðugleikasáttmálanum ef frumvarpið yrði samþykkt. Atli Gíslason formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis á ekki  ekki von á öðru en að greidd verði atkvæði um frumvarpið og það verði samþykkt. Standi SA við hótanir sínar er stöðugleikasáttmálinn fyrir bí.

Samkvæmt frumvarpinu fær sjávarútvegsráðherra heimild til að úthluta 2000 tonna skötuselskvóta til viðbótar við þau 2500 sem útvegsmenn fengu úthlutað. Leigja átti hluta kvótans eða 600 tonn en það gátu útvegsmenn ekki sætt sig við.  Atli Gíslason segir að útvegsmenn telji sig eiga einkarétt á öllum afla á Íslandi. Það sé mjög langt seilst hjá Samtökum atvinnulífsins að hóta því að rifta stöðugleikasáttmála í miðri kreppu út af slíku máli. Jóhanna Sigurðardóttir segir að það séu stjórnvöld í landinu og þau geti ekki látið hagsmunasamtök eins og LÍÚ fleygja stefnumálum sínum út af borðinu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Frá ritstjórn

thora-kristin

Jóhanna og Jenis av Rana - Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

Lítil frétt um að bókstafstrúaður stjórnmálamaður, Jenis av Rana formaður Miðflokksins í Færeyjum vilji ekki sitja til borðs með Jóhönnu Sigurðardóttur og Jónínu Leósdóttur eiginkonu hennar af því að nærvera þeirra er honum ögrun, er stór frétt því hún vekur upp hugsanir um alla þá sem hafa verið settir hjá í færeysku samfélagi fyrir tilverknað karla eins og hans.

Lesa meira
 



Leita á vefnum


Þetta vefsvæði byggir á Eplica