Danir og Svíar harðir í Icesave
Við viljum hjálpa Íslandi, með skilyrðum, að þingið standi að baki ríkisstjórnarinnar við lausn Icesave-deilunnar sagði Lene Espersen utanríkisráðherra Dana að loknum fundi norrænna utanríkisráðherra í Kaupmannahöfn í gær.
Icesave er lykillinn að því að meira fé fáist frá Alþjóða-gjaldeyrissjóðnum sagði Carl Bildt utanríkisráðherra Svíþjóðar.
Jonas Gahr Störe utanríkisráðherra Noregs sló annan tón í viðtali við Aftenposten í gær og útilokaði ekki norskt lán til Íslands óháð Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sagði eftir fundinn að hann væri vongóður um að viðræður við Breta og Hollendinga vegna Icesave, gætu hafist aftur í næstu viku. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sagði í morgun að afstaða Jonas Gahr Störe væri afar jákvæð og hann vonist til að hún setji aukna pressu á hin Norðurlöndin og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn svo hætt verði að tengja saman lánveitingar til Íslands og Icesave-málið.

