Vill áhrif í stjórnarráðinu
Ögmundur Jónasson segir kjósendur vilja velferðarsamfélag og að stjórnmálamenn fylki sér frekar um fólkið í landinu en flokksstofnanir. Þeir sem trúi á þessi markmið kippi sér ekki upp við ,,að það gári dálítið í tebollum Samfylkingarinnar og VG."
,,Það þarf að huga að skuldastöðu heimilanna, keyra niður vexti og henda verðtryggingunni. Bankarnir eru hinsvegar að hækka vextina, Það gera þeir, þrátt fyrir að Seðlabankinn hafi lækkað stýrivexti. Hvar er ábyrgðarkenndin á þeim bæ?
En ert þú sjálfur á leið, aftur í ríkisstjórn?
,, Ég vildi aldrei fara úr ríkisstjórninni. Hún hótaði hinsvegar að sprengja sig í loft upp ef menn samþykktu ekki möglunarlaust það sem fyrir lá í Icesave-málinu. Það var ég ekki reiðubúinn að gera. Ég fór ekki skælbrosandi burt. Ég vil að áhrifa minna gæti í stjórnarráðinu, ég hef aldrei farið leynt með það.“
Vongóður um sættir
Hversu djúpstæðar eru þessar deilur milli samherja í VG. Þú segist styðja ríkisstjórnina en hvað þolir hún lengi við ef fólk stendur ekki saman?
,,Í Icesave var deilt um vinnubrögð og ég tel að þau þurfi að breytast. Annars mun okkur ekki takast vel við endurreisn landsins. Að þessu leyti snerti Icesave-málið kviku stjórnmálanna. Að öðru leyti erum við á sömu siglingu, að verja velferðarkerfið og skapa nýju samfélagi betri og réttlátari umgjörð. Um þetta snúast okkar samræður og ég finn mikinn og ríkan vilja til að gera betur á vettvangi þings og ríkisstjórnar. Hvað varðar ágreining innan okkar raða þá mun hann hverfa þegar menn fara að einblína á úrlausnarefni sem á okkur brenna. Hvað varðar stöðuna í VG þá hefur fólk verið ósátt við hana. Þegar ágreiningur fær að vinda upp á sig er oft erfitt að snúa til baka en það hefst með sameiginlegu átaki.“
Mitt, NEI, var ekki gegn stjórninnni
Ögmundur segist líta svo á að niðurstaðan úr þjóðaratkvæðagreiðslunni hafi þjappað Íslendingum saman gegn ofríki Breta, Hollendinga sem beitt hafi fyrir sig Alþjóða gjaldeyrissjóðnum og ESB. Umræðan erlendis hafi bætt stöðu landsins. Hann segir að Íslendingar eigi að nota öll tækifæri sem gefist til að koma því á framfæri að þeir séu að taka til í sínu húsi; sýna fram á að þeir harmi óábyrga og stundum glæpsamlega framgöngu íslenskra banka og auðmanna, séu staðráðnir að koma lögum yfir þá sem brotið hafa af sér og skila illa fengnum fjármunum. En þrátt fyrir misgjörðir óprúttinna fjármálamanna þýði það ekki að hægt sé að vaða yfir íslensku þjóðina á skítugum skónum.
Hann segist hafa lagt á það mikla áherslu þegar Icesave-málið kom fram að það væri þverpólitískt og allir flokkar á Alþingi ættu að koma að lausn þess. Stjórnarandstaðan, ekkert síður en stjórnin, verði að axla ábyrgð.
,,Hlaupist stjórnarandstaðan frá því verki sé hún að bregðast hlutverki sínu. Það fóru að renna á mig tvær grímur þegar stjórnarandstaðan fór að tala um að endurskoða samningsmarkmið í sömu setningu og því var haldið fram að ríkisstjórnin ætti að fara frá vegna málsins. Þetta gerðist strax eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Greinilegt er að ýmsir höfðu þá fengið blóðbragð í munninn .“
Ögmundur segir að fram að þjóðaratkvæðagreiðslu hafi menn verið í góðum samstarfsgír en þarna hafi þeir eygt möguleika á að koma ríkisstjórninni frá.
,,Þeir hinir sömu eru þó að misskilja mikið ef þeir ímynda sér að ég og þúsundir annarra stuðningsmanna VG hafi fellt lögin til að koma höggi á ríkisstjórnina. Segja má að ríkisstjórnin hafi spilað þetta út úr höndunum á sér með því að gefa misvísandi skilaboð og jafnvel vilja sniðganga þjóðaratkvæðagreiðsluna en mínu NEI var ekki stefnt gegn henni. Reyndar eins langt frá því og hugsast getur. Væri verið að kjósa um ríkisstjórnir væri nær að ég hafi kosið gegn fyrri ríkisstjórnum.“
Grimm hagsmunabarátta undir yfirborðinu
En þótt fólk sé í hjarta sínu sammála Ögmundi í gagnrýni hans á Icesave-málið og Alþjóða gjaldeyrissjóðinn sem taki að sér einhverskonar lögregluhlutverk fyrir fjármagnseigendur og stýri endurreisn landa á þann veg að aldrei sé hægt að rétta hlut þeirra sem minna mega sín, þá tortryggja þeir samferðamenn hans í Icesave-málinu. Heldur hann að Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson séu að berjast af sömu hvötum?
,,Í grundvallaratriðum er ég sannfærður um að hvar í flokki sem við stöndum viljum við hagstæða lausn fyrir Ísland og öll viljum við leggja talsvert á okkur til hún megi nást. Ef ég tryði ekki á þetta hefði ég aldrei talað fyrir þverpólitískri aðkomu að málinu. Ég tel að þetta sé mál okkar allra, við höfum bæði skyldur og lýðræðislegt tilkall til að koma að lausninni saman. Það skilar líka betri árangri. Enda hefur mér verið sagt að samstaðan hafi haft áhrif á viðsemjendur okkar við samningsborðið. Hitt er svo allt annað mál að þegar flokkspóltíkin verður leiðarljósið og þröngir flokkshagsmunir ráðandi þá skilja leiðir með okkur í VG og þeim Bjarna og Sigmundi Davið fyrst þú nefnir þá. Í mínum huga var verkefnið alltaf að losa Icesave úr flokkspólitískum álögum. En hvað hinar pólitísku hvatir varðar eru þær í grundvallaratriðum allt aðrar hjá hægri mönnum en vinstri mönnum. Vinstri menn eru að berjast við vald fjármagnsins, þarna fylgjum við Bjarni Benediktsson ekki sömu hugsun og sjáðu hvernig flokksbróðir hans sænski íhaldsmaðurinn Reinfeldt sendir okkur fingurinn. Undir yfirborðinu kraumar grimm hagsmunabarátta og þar á ég enga samleið með merkisberum peningafrjálshyggjunnar.“
Þú sérð þá raunverulega hættu á því að Icesave sé að verða flokkapólitíkinni að bráð?
„Já, það er raunveruleg hætta á því. En þá skilja líka leiðir. Það væri slæmt málstaðarins vegna og hagsmuna okkar, sem eru gríðarlegir. Við höfum ekki efni á því að vera smá í þessu máli.“
Trúir enn á samstöðu
Þrátt fyrir skýrar vísbendingar um að stjórnarandstaðan ætli með þetta mál í skotgrafir segist hann enn blása á tal um að gefast upp gagnvart verkefninu og þverpólitísku samstarfi.
En nú finnst mörgum sem fylgjast með umræðunni að formaður Framsóknarflokksins muni ekki sættast á neina ábyrgð í Icesave-málinu og sé til í að bíða niðurstöðu afar lengi. Hvenær verður fullreynt að reyna þetta sameiginlega? Og eru öllu til fórnandi?
„Ég er ekki í hópi þeirra sem hef efast um heilindi formanns Framsóknarflokksins. Ég hef stundum verið gagnrýndur fyrir að segja einmitt þetta. Það tilheyrir nefnilega flokkapólitíkinni í hugum alltof margra að geta ekki séð hvítan blett á andstæðingum sínum. Sigmundur Davíð kom inn í stjórnmálin glóðvolgur úr Indefence hópnum, innsta kjarna Icesave andófsins og hefur verið trúr köllun sinni. Spurningin núna er hins vegar hvort hann ætlar að gerast framsóknarmaður í málinu líka. Harðlínuafstaða og flokkspólitískir hagsmunir eru ekki lausnamiðaður kokteill. Hvað við getum beðið lengi, þá minni ég á að þrautseigja og úthald er það sem mestu máli skiptir til að ná árangri. Þarna eru gríðarlegir hagsmunir í húfi. Tugir og hundruð milljarða hanga á spýtunni . Það er einsog sumir haldi að þetta sé fyrst og fremst akademískt viðfangsefni sem komi veruleikanum nánast ekkert við, í besta falli laustengt við hann. Það vill hins vegar svo til að við erum að tala um nákvæmlega sömu krónurnar og menn í opinberri þjónustu taka upp úr launaumslaginu sínu. Því meira sem greitt er fyrir Icesave, þeim mun minna er til skiptanna í heilbrigðiskerfinu, skólunum og fyrir fatlaða. Stundum hef ég spurt sjálfan mig hvort menn séu nokkuð búnir að gleyma því fyrir hverja við viljum standa vaktina, hvernig við forgangsröðum. Ég set velferðarsamfélagið í forgang. Því er ekki fórnandi. “
Og Ögmundur segir Alþjóða verkalýðshreyfinguna sýna þessu máli mikinn áhuga.
,,Ekki málinu í smáatriðum heldur samstöðunni. Og því að lýðræðið hafi verið virkjað um tilskipanir sem runnar eru undan rifjum alþjóða fjármálakerfisins. Litið er á þjóðaratkvæðagreiðsluna sem vopn gegn yfirgangi fjármagnsins. Þessi slagur er ekkert bundinn við Ísland. Þess vegna hefur hann þýðingu á alþjóðavísu. Nýlega komu þýskir þingmenn fram með tillögu um að Grikkir seldu grísku eyjarnar til að ná sér upp úr efnahagslægðinni. Að sama skapi hafa breskir þingmenn talað um að Íslendingum ætti ekki að verða skotaskuld að virkja sig út úr vandanum. Undir þetta tekur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sem vill að að útlendingar komi hér með tæpa hundrað milljarða á ári inn í atvinnulífið. Hvað halda menn að það þýði annað en stóriðja.“
Ekki smjörklípa
Það hefur verið bent á að þótt Icesave-skuldin sé há, sé hún ekki alvarlegasta skuldbindingin sem Ísland þarf að horfast í augu við. 300 milljarða lán Seðlabankans, verðtryggt og á hærri vöxtum sé stærri biti að kyngja og komi fyrr til greiðslu. Það sé raunveruleg hætta á gjaldþroti landsins þótt Icesave-hefði aldrei verið fundið upp. Það vekur upp grun um að Icesave-málið sé í raun smjörklípa, ekki síst með tillliti til hversu hart sjálfstæðismenn beita sér en þeir bera óumdeilanlega mesta pólitíska ábyrgð á Icesave eða er ekki svo?
,,Jú, þeir bera ábyrgð á því að Ísland var gert að spilavíti. Á sjálfum Icesave samningnum ber núverandi Alþingi hins vegar ábyrgð. Þetta tog um hver beri ábyrgð hefur hins vegar frekar verið okkur fjötur um fót við lausn málsins. Aðalaatriði er að geta horft fram á við. Það er svo aftur sjálfstætt og mjög verðugt verkefni að rekja pólitíska ábyrgð hrunsins. Það þarf að sjálfsögðu að gera. Varðandi skuldir Seðlabanakans eða aðrar skuldir ríkisins gildir allt öðru máli en um Icesave sem eru skuldir einkafyrirtækis sem mikil áhöld eru um að skattborgaranum beri skylda að standa skil á. Aldrei hefur leikið á því vafi að íslenska ríkið greiddi sínar skuldir hvernig sem þær eru tilkomnar. Það á við um skuldir Seðlabankans sem og aðrar skuldir ríkisins. Að halda því fram að Icesave sé smjörklípa sem litlu máli skipti er út í hött. Ef þessar risaupphæðir eru lítið hlutfall af heildarvandanum þeim mun alvarlegra er málið. Við erum að tala um peninga sem skipta sköpum fyrir okkur sem velferðarsamfélag, hvorki meira né minna.“
Ekki gamanmál þegar vinir deila
Hvað með þig og Steingrím J.Sigfússon. Eruð þið að tala saman?
,,Við Steingrímur höfum ekki talað eins mikið saman upp á síðkastið og við höfum lengst af gert. Ekki gleyma því að við erum pólitískir samferðamenn og félagar til langs tíma og höfum átt mjög náið samastarf í gegnum tíðina. Nú hefur verið vík milli vina. Yfir þá vík er hins vegar hægt að róa og ég hef trú á því að menn séu í þann veginn að setjast undir árar.“
Þið áttuð nýlega fund til að ræða ágreiningsefni.
Sá fundur fjallaði fremur um það sem sameinar okkur en hitt sem við erum ósammála um. Einhvern tímann hefði manni þótt skrítið að það skyldi verða blaðafrétt að við Steingrímur J. Sigfússon settumst niður til að spjalla. Auðvitað var það engin frétt. Eigum við ekki bara að segja að þetta sé svolítið hlægilegt. Og þannig verður það vonandi þegar fram líða stundir og tímabundnar deilur að baki. Þú munum við félagarnir í VG öll að nýju geta hlegið saman. En seint held ég að við hlæjum að því sem hent hefur á undangengnum mánuðum. Það er nefnilega ekkert gamanmál þegar vinir og félagar deila.“
Athugasemdir (11)
-
Sig. Sveins skrifar:
Vonandi er þetta viðtal við Ögmund til marks um að hann og aðrir í minnihluta VG gangi nú í reynd til liðs við ríkisstjórnina.
Ekkert er mikilvægara en að stjórnin haldi og að við komumst áfram með endurreisnina.
Leysa þarf Icesave sem allra fyrst. Betri kjör virðast í boði. Stjórnarandstaðan ætlar augljóslega ekki að taka þátt í því alla leið. Þá verður VG í heild að hafa hugrekki til að klára málið. Annars er sjálfhætt í stjórninni.
Það er ekki hægt að segjast styðja stjórnina en veikja hana síðan í sífellu með makki við stjórnarandstöðu sem situr á svikráðum við stjórnina og almenning allan.
Það þarf ekki að lesa marga pistla frá frjálshyggjumönnum Sfl. og Ffl. til að sjá hvað fyrir þeim vakir: að koma ræningjunum aftur til valda sem fyrst.

marat skrifar:
Vonandi er þetta til marks um að ríkisstjórnin er að beygja til vinstri. Fyrr eða síðar hljótum við vinstri menn að átta okkur á því að við þurfum að hafa metnað til annars en halda Sjálfstæðismönnum utan stjórnar. Það þarf meira til.
Við megum ekki leika hlutverk gyðingalögreglunnar í fangabúðunum. Við megum ekki kyngja því þegjandi og hljóðalaust að slátra velferðinni og horfa á hörmungarnar án þess að bugast.
Félagsmálaráðherra \"félagshyggjustjórnarinnar\" sagði það ekki í \"mannlegu valdi\" að bjarga alþýðuheimilum þessa lands.
Forsætisráðherrann situr \"agndofa\" yfir fréttum af spillingunni, en ríkisstjórnin er svo kengbogin og sliguð af hugmyndum frjálshyggju undanfarinna ára að hún telur ekki mega \"skipta sér af\".
Seðlabankinn er \"frjáls og óháður\" samkvæmt forskrift frjálshyggjunnar og er að vangaveltast yfir vaxtalækkunum í hagkerfi sem er bundið í verðtryggingu og gjaldeyrishöft. Þar lesa þeir ritgerðir um það hvernig eigi að stjórna Atlantshafinu en eru með vatnsglas í hendinni. Við erum bara 300 þúsund.
Og hvernig er með heilbrigðiskerfið. Það er að hrynja, hljóðlátlega, innan frá. Allt í boði AGS og Álfheiðar Ingadóttur.
Hvar er íslensk vinstri hreyfing? Er hún liðin undir lok? Þarf að stofna nýjan vinstri flokk?
Vonandi tekst Ögmundi að þvinga flokkinn til vinstri áður en það er orðið of seint.
-
Guðmundur Jónsson skrifar:
Mér finnst að Ögmundur eigi að verða heilbrigðisráðherra aftur. Það er vandasamur málaflokkur sem verður að þola óstjórnlegan niðurskurð í ár og næsta ár að minnsta kosti. Ég er heilbrigðisstarfsmaður og sá hvernig hann tók á málum þegar hann var í ráðuneytinu með samráði við fagstéttir.
-
Starkaður skrifar:
Ögmundur ætlar sér ekki að verða maðurinn sem veltir fyrstu vinstri stjórninni á Íslandi úr sessi. Svo mikið hatar hann Sjálfstæðismenn. Það sem Ögmundur kallar “vík”, var fullkomið frost í samskiptum hans og Steingríms. Ögmundur þorir ekki koma hreint og beint fram þegar hann ræðir samskipti sín við formanninn. Það dylst engum sem til þekkir, að þingflokkur VG skiptist í tvær fylkingar; Steingríms og Ögmundar. Það sem Ögmundur er að gera núna, er, að hann er að búa fólk undir það að Icesave muni klárast með hans aðstoð. Ögmundur telur sig vera búinn að leggja sín lóð á vogarskálarnar, nú sé nóg komið, hann geti hirt heiðurinn af því að betri samningar náist, og því sé komið að því að setjast í stjórnina. Og innkoma hans á að vera vörðuð áhyggjum hans af skuldastöðu heimilanna! Þar kom að, myndi nú einhver segja. Er það fyrst núna að renna upp fyrir verkalýðsforingjanum að eigið fé heimila er brunnið upp og fólk notar kreditkort sem aldrei fyrr. Það tók hann 14 mánuði að átta sig á þessu
-
Doddi D skrifar:
Steingrímur sagði að það lægi Icesave samningur á borðinu og þess vegna væri þjóðaratkvæðisgreiðslan markleysa. Var hann að skrökva?
Ögmundur er ekki í ríkisstjórn. Er það honum að kenna að eigið fé heimilanna er að brenna upp? Ætli það sé ekki fremur AGS samningnum og hálfvitagangi ríkisstjórnarinnar að kenna? Hvað stöðvar ríkisstjórnina? -
Hörður Bjarnason skrifar:
Loksins virðist vera að rofa til í VG. Allir sannir vinstri menn hljóta að fagna því ef Ögmundur er á leið inn í ríkisstjórnina aftur. Óvild í hans garð er vægast sagt furðuleg. Hann kemur úr jarðvegi róttækasta hluta verkalýðshreyfingarinnar og ef menn vilja ekki sjá slíka menn í fremstu víglínu er illa fyrir vinstrihreyfingunni komið. Hann þekkir þarfir og væntingar almennings betur en nokkur annar innan VG. Leyfum Ögmundi að njóta sannmælis - það er sárt að sjá suma hér reyna að rífa hann í sig eins og glorhungraða úlfa. Þeir ættu að beina svengd sinni eitthvað annað.
-
Pétur Örn Björnsson skrifar:
25.01.2010 birtist hér á Smugunni leiftrandi skýr og afhjúpandi grein eftir Þórarinn Hjartarson: \"Stundum brosir auðvaldið til vinstri - Tvær dæmisögur\". Mig langar til að rifja meginatriðin upp.
Í greininni tekur Þórarinn samlíkingu milli verka Obama -strengjabrúðu Wall Street auð-hringanna- og verka búsáhalda-ríkisstjórnar Samfylkingar og VG. Samlíkingin við Obama færir okkur lesendum skemmtilegt og frjótt sjónarhorn á brostnar vonir vinstri manna. Já, hversu lengi á að verja \"sinn mann\", Steingrím og hans sauðtryggu klíku í drep, sem gengur erinda sömu auðvalds-hringa og Obama?
Þórarinn tekur einn Kalla Marx á þetta og sjá: Allt er það eftir bókinni. Hér eru faldar valda-afstæður, sem þarf að afhjúpa. Við getum líka tekið einn Hegel á þetta og sagt að nú eigi tími antitesunnar að renna upp gegn tesunni ömurlegu sem auðvaldið felur með valdastofnunum sínum og skinhelgri lygi og blekkingum til að forðast stéttabaráttuna.
Er það td. ekki öllum augljóst hvað þeir dansa vel saman undir silkislæðu valdsins, þeir Villi Egils, Gylfi Arnbjörns, Steingrímur og Össur? Og svo hafa þeir undanfarið fengið álitsgjafana frá Háskólunum til jarma með og birta í fjölmiðlum ríkisins.
Nú verður fólk, ekki síst ungt fólk í VG að rífa sig upp frá glamúr-froðunni, og leyfa róttækum hugsunum að leika um heilabúin og spyrja gagnrýninna spurninga í stað þess að liggja eins og hvolpar og mæna með sínum hvolpaaugum á húsbændurna. Höfum við virkilega ekki fengið nóg af valda-afstæðunum: Húsbændur og hjú?
\"Glennið upp augun\" sagði byltingarskáldið rússneska Majakovskí fyrir um 90 árum síðan -þegar honum sveið hvað byltingin gekk hægt og trénaði fljótt í Rússlandi- og ef sannt VG fólk glennir upp augun og leyfir róttækum hugsunum að leika -eins og vorvinda- um heilabúin, þá er ég viss um nýr Blossi og jafnvel fallegir eldar lýsi brátt upp himininn yfir Austurvelli.
Amk. er morgunljóst að ekki veitir af Blossa í frosin heila-bú \"rólegu\" deildarinnar í þinghúsinu á Austurvelli.
Eftir eitt heilt ár \"rólegu\" deildarinnar í VG með Samfylkingunni hefur hér bara verið \"endurreist\" banka- og fjármálakerfið, sjálfur hrunvaldurinn \"endurreistur\" í nákvæmlega sömu siðspilltu og viðurstyggilegu mynd og áður!
Á maður að fagna því? Á maður að sötra kókó með froðu og fyllast stolti af verkum VG í ríkisstjórn það sem af er? Er þetta alþýðu-sigurinn? Banka- og fjármálakerfið? Vafalaust er það í þökk AGS og handrukkara þeirra, en alls ekki okkar!
\"Glennið upp augun\" í guðanna bænum. Vaknið af værðinni.
Hér hefur allt verið í skötu líki hvað varðar skjaldborgina frægu.
Hér hefur allt verið í skötu líki hvað varðar norrænu velferðina frægu.
Hér hefur allt verið í skötu líki hvað varðar raunverulegar og aðknýjandi lausnir á vanda heimilanna.
Röflað hefur verið mikið um smá- og sprota-fyrirtæki. Fögur fyrirheit, sem efnd eru með því að auka álögur á þau og stórhækka tryggingargjaldið! Einhvern veginn finnst mér að vinstri höndin viti ekki hvað sú hægri gerir.
Fólk lifir ekki á fögru fyrirheitunum einum saman. Hér þarf að ráðast í hugmyndafræðilega, djarfa og róttæka sóknar-áætlun sem stór-virkjar höfuð-bú allra, okkar allra, til virkrar og bú-sældarlegrar framtíðar.
Hér hrundi allt, á ég að minna okkur öll á það aftur? Hér hrundi allt! Og hvenær er lag - EF EKKI NÚ - til að skapa okkur réttlátara og sanngjarnara þjóðfélag, með algjört gagnsæi að leiðarljósi? Það er það sem við viljum öll. Verum gagnrýnin og tökum nú slaginn. Venceremos!
Það er beinlínis lífs-nauðsynlegt fyrir okkur, sem erum róttæk til andans og hneigjumst til vinstri í hjarta okkar, að \"órólega\" -ég vil segja LIFANDI og mennska deildin með Ögmund í fararbroddi- í VG fái snar-aukin ítök í ríkisstjórninni og það sem allra fyrst, því nógu lengi höfum við beðið eftir því að sjá einhver VINSTRI teikn á þessari ríkisstjórn. -

Stígvélið skrifar:
Ég treysti mér ekki til að kjósa VG aftur ef raddir Ögmundar, Lilju og Guðfríðar Lilju verða þaggaðar niður af austur þýska alræðisvaldinu. Kemur ekki til greina!
-
Hranni skrifar:
Það eru góð tíðindi að Ömmi er á leið inn í stjórnina - það þýðir breyttar áherslur og skýrari markmið í baráttunni milli almennings og auðmanna.

Skrifa athugasemd