Fréttir
Löggur mótmæla
Um 150 lögreglumenn mótmæltu fyrir utan Höfðaborg, Þar sem Ríkissáttasemjari er til húsa í dag. Þeir eru ósáttir við hversu hægt hefur miðað í samningaviðræðum við ríkið. Lögreglumennirnir felldu kjarasamning í fyrrasumar en síðan þá hefur hvorki gengið né rekið í viðræðum.
Lögreglumennirnir létu í sér heyra, blístruðu og klöppuðu þegar klappað og flautað þegar samninganefnd þeirra kom í hús. Samninganefnd ríkisins laumaði sér inn bakdyramegin.

