Landsvirkjun og Magma Energy
Nýr yfirmaður hjá Landsvirkjun kom Magma Energy á kortið hérlendis. Hann var einn af stjórnendum Glacial Partners eins aðalráðgjafarfyrirtækis Magma.
Magnús Bjarnason nýr framkvæmdastjóri markaðs og viðskiptaþróunar Landsvirkjunar. Hann var stofnfélagi og framkvæmdastjóri Glacier Partners og Capacent Glaciers sem sérhæfir sig á sviði endurnýjanlegrar orku. Fyrirtækið er einn helsti ráðgjafi Magma Energy.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, átti fund með Ross Beaty, forstjóra kanadíska jarðhitafélagsins Magma Energy í fyrrasumar þar sem ræddu meðal annars umsvif Magma og fyrirlætlanir þeirra um að hasla sér völl í íslenskum orkuiðnaði. Sá fundur mun meðal annars hafa verið að undirlagi Magnúsar. Fyrirtækið keypti sig inn í HS orku eins og frægt varð, Margir brugðust hart við meðal annars fjármálaráðherra sem lét kanna hvort aðrir gætu komið að kaupunum í stað Kanadamanna. Kaupin gengu í gegn en sérstök nefnd er enn að störfum til að kanna hvort kaupsamningurinn hafi verið löglegur.
Magnús hefur komið víða, Hann var áður starfandi í utanríkisþjónustunni, framkvæmdastjóri Alþjóðasviðs Glitnis, viðskiptafulltrúi Íslands í Bandaríkjunum og staðgengill sendiherra í sendiráði Íslands í Kína.

