Aka um borgina á eðalvögnum
Umhverfissóðar á loftslagsráðstefnu
Fjölmargir þátttakendur á Loftslagsráðstefnunni COP 15 sem hófst í morgun munu ferðast á milli staða í Kaupmannahöfn í orkufrekum eðalvögnum í stað þess að nýta sér almenningssamgöngur eða annan umhverfisvænni máta.
Eðalvagnafyrirtæki borgarinnar gera ráð fyrir að þurfa að reiða fram um 1200 eðalvagna til þess að þjónusta ráðstefnugesti sem sækjast öðru fremur eftir því að sitja í eðalvögnum á leið sinni um borgina.
Þátttakendur frá Bandaríkjunum einum hafa óskað eftir 200 eðalvögnum til þess að ferja sig á milli staða. Starfsmenn eðalvagnafyrirtækja segja ráðstefnugesti og skipuleggjendur ekki spyrja eftir „grænum“ bílum í meira mæli en aðrir viðskiptavinir.
Athugasemdir (4)
-
Elfar skrifar:
Enda snýst þessi ráðstefna ekkert um umhverfisvernd, eða að leysa loftlagsvandann, heldur einungis um hvernig megi kapitalísera vandann og græða á honum!
-
Gunnhildur skrifar:
Sammála síðasta ræðumanni.
-
Hrönn skrifar:
Það á að einkavæða andrúmsloftið á sama hátt og verið er að gera við vatnið í þróunarlöndunum. Setja kvóta á alltsaman og leyfa risa-alþjóða-fyrirtækjasamsteypum að hirða hann.
Minnir mann á Ladda í kábojlaginu:
Sker af þeim skallann, þurrka og herði, sel þeim svo aftur á uppsprengdu verði!!! -
Jón Ottesen skrifar:
Já 1200 limósíur yfir eina helgi breyta öllu máli og gera þá sem þær nota að umhverfissóðum. Give me a brake.
Hvernig væri að horfa á stóru myndina og sleppa smámununum?


Skrifa athugasemd