Vefrit um pólitík og mannlíf
3. september 2010

Samkeppniseftirlit og blaðasamruni

Samkeppniseftirlit og blaðasamruni

12.2.2009

mogginn

Samkeppniseftirlitið hefur enn ekki úrskurðað um áður fyrirhugaðan samruna hluta af starfsemi Fréttablaðsins og Morgunblaðsins. Frestir líða mánaðamót.

Samkvæmt upplýsingum Samkeppniseftirlitsins er athugun á því hvort áform um samruna og sameiginlega prentun Fréttablaðsins og Morgunblaðsins enn ólokið og stendur við það sama og gerði fyrir jól.

Reiknað var með því að málinu lyki fljótlega upp úr áramótum, en annað kom á daginn. Óljós staða á eignarhaldi og rekstrarumhverfi veldur.  Ekki er enn komið fram hver eignast Morgunblaðið sem nú er rekið undir verndarvæng Glitnis.

Vegna margvíslegrar óvissu um hin upphaflegu áform hefur Samkeppniseftirlitið ekki fengið svör frá eigendum blaðanna um ákveðin atriði í fyrirhuguðum samruna. Væntanlega af því þau hafa ekki verið til.

Í haust stóð var á dagskrá að athuga möguleika að sameina reksturinn allan og að sami eigandi , Árvakur, gæfi út bæði blöðin.  Frá því var horfið og þess í stað stefnt að sameiginlegri prentun og dreifingu.  Hvort slíkur samruni stenst lög liggur heldur ekki fyrir, enda þarf þá eignarhald á prentsmiðju og útgáfufélögum að vera skýrt.

Fjallað er um söluna á Árvakri á Eyjunni  og AMX í dag. og segir þar að Glitnir reyni nú að tryggja að erlendir aðilar séu ekki að ganga erinda innlendra manna með því að leppa kaupin. En sá orðrómur hefur verið um ástralska fjárfestinn Steve Cosser.


Fjórir hópur vilja kaupa Moggann,  Ástralinn Steve Cosser, Óskar Magnússon fyrir hönd hóps fjárfesta, Hallbjörn Karlsson og Árni Hauksson og Almenningshlutafélag um rekstur Morgunblaðsins sem Vilhjálmur Bjarnason fer fyrir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica