„Út með Hauk – inn með Geir!“
Af vettvangi mótmælanna við lögreglustöðina
"Út með Hauk - inn með Geir!" var krafa um 500 manns á öllum aldri sem söfnuðust saman fyrir utan lögreglustöðina við Hverfisgötu að loknum mótmælafundinum á Austurvelli í dag. Mannfjöldinn mótmælti handtöku heimsspekinemans Hauks Hilmarssonar sem dró fána Bónusverslananna að húni á Alþingishúsinu fyrir tveimur vikum.
Til að byrja með voru mótmælin friðsöm en hávær. Þegar þau höfðu staðið yfir í tæpa klukkstund án nokkurra viðbragða frá lögreglunni tók hópur mótmælenda upp á því að reyna að sparka upp hurðina á lögreglustöðinni. Hurðinni var að lokum sparkað upp en þar fyrir innan voru aðrar lokaðar dyr. Stuttu síðar opnaði lögreglan rifu á þær og sprautaði piparúða á fólkið. Á annan tug viðstaddra fékk úðann í andlit og augu. Einhverjir þeirra þurftu að fara á slysadeild, þeirra á meðal móðir Hauks, Eva Hauksdóttir. Æsingur jókst og brotin var rúða á lögreglustöðinni. Stuttu síðar birtist vopnuð sveit um tuttugu lögreglumanna og hóf að fjarlægja fólk úr fordyri hússins með valdi, og að því er virtist barsmíðum, þar sem fólkið neitaði frá að hverfa. Varð fréttamaður Smugunnar meðal annars vitni að því þegar lögreglumaður sló einn mótmælandi í höfuðið eftir að hann hafði stjakað við honum. Lögreglusveitinni tókst án mikilla átaka að fjarlægja fólkið úr fordyrinu, en þó brotnaði ein önnur rúða á lögreglustöðinni í þeim. Eftir að lögreglusveitin hafði fjarlægt fólkið úr húsinu færðust mótmælin í fyrra horf en beindust þá að lögreglumönnum sem stóðu í tröppunum og gættu dyra lögreglustöðvarinnar.
Haukur var handtekinn í anddyri þingflokksskrifstofu Samfylkingarinnar í gærkvöldi þar sem hann var í kynnisferð ásamt samstúdentum sínum í heimsspeki. Að sögn viðstaddra kallaði lögreglan hann til sín og tilkynnti honum að hann væri "eftirlýstur vegna vangoldinnar sektar". Síðan handjárnaði lögreglan hann og tók hann með sér. Hann sýndi engan mótþróa við handtöku.
Lögregan hefur í fjölmiðlum sagt ástæður handtökunnar vera dóm sem Haukur fékk fyrir baráttu sína gegn virkjanaframkvæmdum árið 2005. Hann var dæmdur í 14 daga varðhald eftir að hafa neitað að borga sekt. Haukur var á sínum tíma kallaður til afplánunar og sat þá inni í fjóra daga en var þá látinn laus vegna plássleysis í fangelsinsu. Lögreglan segist nú vera að framfylgja þessum dómi. Móðir Hauks, Eva Hauksdóttir hefur hins vegar sagt í fjölmiðlum í dag að Hauki hafi aldrei verið tilkynnt um að koma til afplánunar, en það þarf að gera með þriggja vikna samkvæmt lögum. Yfirvöld hafa ekki borið þá fullyrðingu tilbaka.
Mótmælunum við lögreglustöðina lauk laust fyrir klukkan 18 eftir að einstaklingur sem ekki vill láta nafns sín getið greiddi upp sekt Hauks og var látinn laus í kjölfarið. Samkvæmt heimildum Smugunnar var Haukur keyptur út úr fangelsinu ídag til að reyna að hindra að mótmæli í þjóðfélaginu færu úr böndunum.
