Vefrit um pólitík og mannlíf
3. september 2010

Byltingin hefst í Háskólanum

Öskra, hreyfing byltingarsinnaðra stúdenta rís upp

16.1.2009

bylting

byltingHreyfing byltingarsinnaðra stúdenta, sem kallar sig Öskra, er að rísa upp í Háskóla Íslands. Í yfirlýsingu sem Smugunni barst kemur fram að hreyfingin ætli að sniðganga „hina hefðbundnu stúdentapólitík og beitum okkur af fullum krafti gegn því óréttlæti sem hefur fengið að ríkja í öllu samfélaginu.“

Hér er yfirlýsingin í heild sinni:


ÖSKRA

Yfirlýsing

Öskra er hreyfing byltingasinnaðra háskólanema sem neita að loka augunum fyrir misréttinu í þjóðfélaginu. Íslenskt samfélag byggist á óréttlátu valdakerfi þar sem kyn, stétt og þjóðerni ráða stöðu fólks og koma í veg fyrir raunverulegt jafnrétti. Slíkt ástand er óásættanlegt.

Við sniðgöngum hina hefðbundnu stúdentapólitík og beitum okkur af fullum krafti gegn því óréttlæti sem hefur fengið að ríkja í öllu samfélaginu. Það er ekki hægt að kaupa okkur með loforðum um hærri námslán, malbikuð bílastæði eða betri samlokugrill. Við krefjumst allsherjar breytinga

Hreyfingin Öskra er ekki starfsþjálfun fyrir stjórnmálamenn, við erum ekki pólitíkusar í framapoti heldur skríll sem krefst róttækra breytinga fyrir allt samfélagið og til að ná þeim árangri munum við ekki beita prúðum ályktunum heldur samfélagsþjónustu og beinum aðgerðum, innan og utan háskólans.

Við höfum enga trú á aðferðum stúdentaráðs, sem hefur um langt skeið samanstaðið af íhaldspungum og kratableyðum sem telja það ekki í sínum verkahring að hafa áhrif á þjóðfélagið með öðrum aðferðum en táknrænum gjörningum sem hafa hvorki pólitískan slagkraft né listrænt gildi.

Nú er tíminn fyrir beint lýðræði.
Nú er tími breytinga.

ÖSKRA
oskra@oskra.org
www.oskra.org

Senda grein

Athugasemdir (2)

  1. Ólafur K. Pálsson skrifar:

    Loksins heyrist múkk frá háskólastúdentum. Hundrað daga "einsemd" þeirra frá bankahruni er vonandi lokið.

    Í flestum hugsandi samfélögum hafa háskólastúdentar leitt andóf og "byltingar", en ekki á Íslandi. Það segir kannski eitthvað um samfélagsgerðina.

    En háskólaskríllinn er að vakna og það er vel. Vonandi skiptir það einhverju máli.

    16.1.2009, kl. 10:51 | #

  2. Katrín skrifar:

    Á hverjum laugardegi hef ´ðeg beðið eftir að sjá háskólastúdenta og kennara koma marerandi þúsundum saman niður á Austurvöll til að styðja réttláta baraáttu almennings gegn spillingu og valdagræðgi. Loksins loksins...vaknar háskólinn til raunverulegra verka. Komiði bara fagnandi!!! Flott að kalla ykkur Öskra. Það þýðir ekkert að reyna að tala um fyrir stjórnvöldum..nú þarf hreinlega að öskra á liðið.

    16.1.2009, kl. 21:01 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica