Vefrit um pólitík og mannlíf
30. júlí 2010

Spennan magnast í Samfylkingu

19.11.2008

samfylklogo72pt

 

Fjögur félög innan Samfylkingarinnar hafa nú ályktað gegn ástandinu í stjórnmálum og vilja kosningar. Þetta eru Ungir jafnaðarmenn, Samfylkingarfélag Reykjavíkur, Samfylkingarfélag Borgarbyggðar og í gær bættist Samfylkingarfélag Skagafjarðar í hópinn. Í ályktun þess félags segir orðrétt: "Tafarlaust verður að hreinsa til í stjórn- og fjármálakerfum þjóðarinnar svo þau verði hafin yfir allan grun um spillingu. Þá segir að stjórnvöld verði að sýna almenningi þá virðingu að leggja málin fram fyrir þjóð og þing. Virkt lýðræði sé forsenda endurmats og endurbóta í íslensku samfélagi, segja Skagfirðingarnir. Flokksstjórnarfundur verður hjá Samfylkingunni á laugardag. Sá fundur átti að vera síðastliðinn laugardag en var frestað um viku. Málefnavinna fer fram um morgunin, en dagskrá fundarins hefur ekki verið send út. Verið er að vinna í nýjum stjórnarsáttmála þessarar stjórnar og/eða kosningastefnuskrár að því er heimildir innan Samfylkingar herma.

Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica