Vefrit um pólitík og mannlíf
9. september 2010

Hægri-grænir hyggja á framboð

29.6.2010

haegrigraen

Hægri-grænir eru nýr stjórnmálaflokkur sem stofnaður var 17. júní síðastliðinn og leggur áherslu á hægri sinnaða umhverfisstefnu og leggur auk þess mikla áherslu á að Ísland dragi sig úr samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og ESB. „Þú ert með græningjaflokk sem er til hægri. Það er fullt af fólki á hægri væng stjórnmálanna sem hafa mikinn áhuga á náttúruvernd. Það voru Sjálfstæðismenn sem stofnuðu Ferðafélag Íslands, Útivist og þar fram eftir götunum. Vilja njóta náttúrunnar og nýta hana. Algjörlega á móti ESB, AGS og Icesave,“ segir Guðmundur Franklín Jónsson viðskiptafræðingur og formaður (tímabundinnar) stjórnar flokksins. „HægriGræn hugmyndafræði er stundum kölluð blágræn hugmyndafræði, en báðar þessar stefnur aðhyllast umhverfisvæn haggildi. Í rauninni geta hvoru tveggja, íhaldssamir náttúruverndarsinnar og frjálslyndir félagshyggjumenn sem aðhyllast frjálst markaðshagkerfi, aðhyllts stefnu HægriGrænna, sem er alhliða náttúruvernd.“

En hvernig útfærist umhverfishugsjónin á hægri vængnum? „Hægri-grænir er tegund grænna stjórnmála sem við þekkjum ekki mikið til hér á landi en vel þekkt annars staðar. Í náttúrunni finnast náttúruleg verðmæti og þau skilgreina Hægri-grænir sem endurnýjanlega framleiðslu á vistgæðum sem hafa mælanlega og áþreifanlega verðmæta aukningu í för með sér. Aðrar tegundir verðmæta t.d. eins og samgöngumannvirki eða peningar einfaldlega framlengir og hámarkar þessi náttúrulegu verðmæti með nýsköpun, vinnslu og trausti. Í þessu samhengi er úrvinnsla náttúrulegra verðmæta undirstaða þjónustuhagkerfissins. Hægri-grænir vilja sem minnst ríkisafskipti af þessu ferli þó svo að þessi náttúrulegu verðmæti séu í ríkiseigu.“

Hægri-grænir hyggja á framboð í fyllingu tímans en nú þegar er búið að stofna flokkinn löglega. Þau mál eru þó öll á frumstigi. „Og blessunin hún Jóhanna þarf nú að kalla fyrst til kosninga, en er ekki rétt að leyfa henni að minnsta kosti að njóta hveitibrauðsdagana fyrst.“

Hægri-grænir eru komnir með Facebook-síðu sem Guðmundur telur að geti hjálpað þeim við þessa grunnvinnu. „Við notum hana til að dýfa puttanum í vatnið og sjá hvaða gárur koma – og líka til þess að fá góðar hugmyndir frá fólkinu. En það má alls ekki misskilja þetta, þetta er alls ekki einhver þjóðernisflokkur sem snýst um íhaldsemi og fullveldi, meira bara almenna skynsemi.“

Á áðurnefndri síðu má sjá vísi að stefnuskrá flokksins, en hún er í hnotskurn þessi:

1. HægriGrænir segja NEI við ESB. Draga ESB umsóknina umyrðalaust strax til baka.
2. HægriGrænir vilja færa vísitölu allra verðtryggðra lána til 1. janúar 2008.
3. HægriGrænir heita að brjóta upp viðskiptasamsteypur í þjóðfélaginu.
4. HægriGrænir vilja AGS burt úr íslensku efnahagslífi.
5. HægriGrænir heita afnámi verðtryggingar.
6. HægriGrænir heita lögum um þjóðaratkvæðagreiðslu strax.
7. HægriGrænir ætla að skera fituna utan af ríkisbákninu, það má leggja niður 600 nefndir.
8. HægriGrænir ætla að birta allar eyrnamerkingar og upphæðir í fjárlögum undir liðnum „Birtum Báknið.“
9. HægriGrænir ætla að hækka skattleysismörk í 250.000 kr.
10. HægriGrænir vilja 1% stýrivexti og 19% flatan skatt.
11. HægriGrænir heita að setja á 95% veiðiskyldu á aflaheimildir. NEI við fyrningarleiðina.
12. HægriGrænir segja NEI við löglausum kröfum Breta og Hollendinga í Icesave málinu.

Nánari útlistun má einnig sjá á síðunni, sem má finna hér.

Senda grein

Athugasemdir (15)

  1. Náttúruverndarsinni skrifar:

    Ég get ekki séð neitt um náttúruvernd í stefnuskránni. Enda held ég að Hægri Grænir sé hreyfing manna sem vill að fólkið slái blettinn sinn heima og klippi hekkið ferkantað.

    29.6.2010, kl. 17:31 | #

  2. BíBí Laufdal skrifar:

    Örugglega ferkantað lið eins og hekkið.

    29.6.2010, kl. 17:44 | #

  3. BíBí Laufdal skrifar:

    Ferkantaður Exshell.

    29.6.2010, kl. 18:03 | #

  4. Haraldur skrifar:

    Gömul Framsókn

    29.6.2010, kl. 18:14 | #

  5. Agnar Kr. Þorsteonssin skrifar:

    Guðmundur Franklín Jónsson stendur á bak við þetta.

    29.6.2010, kl. 18:19 | #

  6. Jóhannes Ragnarsson, Ólasvík skrifar:

    Hverjir ætli standi lengra til hægri, Hægrigrænir eða hægri armur Vinstrigrænna?

    Báðir segja NEI við fyrningarleiðinni.

    29.6.2010, kl. 18:27 | #

  7. Anna skrifar:

    Hvar er \"græni\" hlutinn af stefnuskránni? Ég sé ekkert annað en hægri afturhald og einangrun.

    Hvað í veröldinni er \"endurnýjanleg framleiðsla á vistgæðum sem hafa mælanlega og áþreifanlega verðmæta aukningu í för með sér.\"

    Er einhver til í að þýða þetta á íslensku?

    29.6.2010, kl. 18:55 | #

  8. Arnar Ívar Sigurbjörnsson skrifar:

    Takið eftir.
    Það setndur í stefnuskránni að nýta auðlindir og lifa í sátt við náttúruna. Án mikilla afskipta hins opinbera, eins og VG vill, þeir vilja skamta okkur lífskjör.

    29.6.2010, kl. 21:26 | #

  9. Soffía frænka skrifar:

    Gott djók, þriðji sjálfstæðisflokkurinn, ætli Illugi sé þarna? Sá sem málaði ránfuglinn grænan.

    29.6.2010, kl. 21:47 | #

  10. Haraldur skrifar:

    \"mælanleg vistgæði með verðmætaaukningu\" hljómar vel í stefnuskrá hvaða sjálfstæðisflokks sem er og þýðir: græða/grilla græða/grilla og græða svo aðeins meira áður en aftur er grillað. Vonandi verða sjálfstæðisflokkarnir sem flestir, þetta er greinilega aukaútgáfa í viðbót við þá sem menn þóttust sjá fyrir í kjölfar fundarins um helgina.

    29.6.2010, kl. 21:58 | #

  11. Elle skrifar:

    Að ofan stendur: \"En það má alls ekki misskilja þetta, þetta er alls ekki einhver þjóðernisflokkur sem snýst um íhaldsemi og fullveldi,\" Skil ekki vel hvað þið meinið. Viljið þið ekki fullveldi? Og þið megið ekki halda fram eins og Evrópubandalagssinnar halda jafnan fram, að fólk sem vill fullveldi og sjálfstæði landsins séu endilega þjóðernissinnaðir. Fullveldi lands hefur í sjálfu sér ekki neitt með þjóðerni að gera, heldur bara fullveldi lands. Viljið þið ekki fullveldi og sjálfstæði landsins? Og líka kemur ekkert fram um að halda auðlindum og ríkisfyrirtækjum í eigu og vörslu þjóðarinnar. Hvað viljið þið þar?

    30.6.2010, kl. 1:02 | #

  12. Garpur skrifar:

    1. HægriGrænir segja NEI við ESB. Draga ESB umsóknina umyrðalaust strax til baka.

    Augljóst og til þess fallið að ná inn öllum andstæðingum Jóku Jóke.

    2. HægriGrænir vilja færa vísitölu allra verðtryggðra lána til 1. janúar 2008.

    Hálf hallærisleg krafa en göfug.

    3. HægriGrænir heita að brjóta upp viðskiptasamsteypur í þjóðfélaginu.

    Ekki alveg ljóst hvernig það er hægt ef viðskiptin eiga að fá að njóta sín.

    4. HægriGrænir vilja AGS burt úr íslensku efnahagslífi.

    Þótt fyrr hefði verið.
    5. HægriGrænir heita afnámi verðtryggingar.

    Göfugt markmið sem mun ekki falla öllum í geð, bæði kommar og venjulegt fólk á innstæður sem treysta á verðtryggingu.

    6. HægriGrænir heita lögum um þjóðaratkvæðagreiðslu strax.

    AUGLJÓS nútímakrafa

    7. HægriGrænir ætla að skera fituna utan af ríkisbákninu, það má leggja niður 600 nefndir.

    Létt fyndið að ætla að leggja af nefndir sem eru í raun drævið í samfélaginu - en augljólega má leggja einhverjar nefndir af - þær sem ekki eru með vermætaskapandi tilgang

    8. HægriGrænir ætla að birta allar eyrnamerkingar og upphæðir í fjárlögum undir liðnum „Birtum Báknið.“

    Skil þennan lið ekki alveg - en örugglega gáfulegur.

    9. HægriGrænir ætla að hækka skattleysismörk í 250.000 kr.

    Af hverju ekki í 400.000.kr og innheimta frekari neysluskatta?

    10. HægriGrænir vilja 1% stýrivexti og 19% flatan skatt.

    Villtir draumar með stýrivextina en göfugt markmið með skattinn.

    11. HægriGrænir heita að setja á 95% veiðiskyldu á aflaheimildir. NEI við fyrningarleiðina.

    Fínt - allir í raun sammála - vantar bara að taka á heildar kerfinu

    12. HægriGrænir segja NEI við löglausum kröfum Breta og Hollendinga í Icesave málinu.

    Best er að sennilega er ekki um raunverulega skuld að ræða, bæði vegna eignastöðu Landsbankans í London og í Hollandi

    Þetta var ágætur listi að fara í gegnum.

    30.6.2010, kl. 2:11 | #

  13. Garpur skrifar:

  14. Daníel skrifar:

    Kommon! Ég meina, þetta hlytur að vera djók. Skoðið bara þessa málsgrein: \"Í náttúrunni finnast náttúruleg verðmæti og þau skilgreina Hægri-grænir sem endurnýjanlega framleiðslu á vistgæðum sem hafa mælanlega og áþreifanlega verðmæta aukningu í för með sér.\" Svona segir enginn nema að vera að gera grín að málfæri frjálshyggjunnar.

    30.6.2010, kl. 8:28 | #

  15. Helgi Jóhann Hauksson skrifar:

    Kannski sumum geti orðið ljóst af þess að það er ekkert „vinstri“ við ESB-andstöðu, þjóðrembing og einangrunarhyggju.
    Þjóðernishyggja og ESB-andstaða er ekki það sem skilgreinir vinstri og það ættu vinstri menn að fara hugleiða. Eða hvaða samfélgsheild í veröldinni styður dyggast allra samfélaga við umhverfisvernd ( en við helst kvörtum yfir að gangi of langt sbr hvalavernd), krafði okkur um að koma á umhverfismati framkvæmda, gengur lengst í neytendavernd og gerir ríkastar grunnkröfur um félagslegt rétttlæti og réttindi launafólks? - Jú það er einmitt ESB.

    30.6.2010, kl. 11:38 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Leita á vefnum

Þetta vefsvæði byggir á Eplica