„Var greinilega búin að dæma okkur“
„Mér finnst þetta til skammar, mér finnst hlálegt að kæra þetta, þetta er fólk sem krafðist þess að ríkisstjórnin færi frá,“ sagði Ragnheiður Ásta Pétursdóttir, fyrrverandi þula, stuttu eftir að hún afhenti Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, stuðningsyfirlýsingu til handa nímenningunum sem kærðir eru fyrir árás á Alþingi. Um 700 manns hafa skrifað undir yfirlýsinguna.
Ásta Ragnheiður tók við yfirlýsingunni en var fámál. „Þetta er ekki ákæruvaldið, heldur löggjafinn, en ég skal að sjálfsögðu taka við þessu,“ sagði hún áður en hún var rokin og vildi ekki veita neinum blaðamönnum viðtöl þar sem hún væri orðin of sein.
„Hún lítur þannig á að þetta komi henni ekkert við,“ sagði Bryndís Björgvinsdóttir, einn forsvarsmanna yfirlýsingarinnar, og Sólveig Anna Jónsdóttir, einn nímenninganna, bætti við: „Þegar hún svaraði fyrirspurnum á Alþingi um málið kom henni þetta greinilega við, hún hélt ýmsu fram og var greinilega búin að dæma okkur. Sagði að við værum sek og hefðum gerst sek um mjög alvarlega glæpi, ofbeldisglæpi og eignaspjöll, þannig að það að hún stígi til baka og láti eins og þetta komi henni ekki við er hlægilegt eiginlega.“
Og hvers krefjast þau af Alþingi? „Við viljum að þau líti heiðarlega á gögnin, gefi sér tíma til að kynna sér þau, því þá munu þau sjá að rangfærslurnar og vitleysurnar eru svo yfirgengilegar að það eina eðlilega væri að falla frá málinu,“ sagði Sólveig og bætti við: „Ég beitti enga manneskju ofbeldi, ég eyðilagði ekki. Við fórum innan um þær dyr sem ætlast er til að almenningur noti, þær voru opnar, við vorum ekki vopnuð. Við notuðum ekki ógnandi atferli, við ætluðum að fara uppá pallana og koma þeim skilaboðum til þingheims að þetta væri vanhæf ríkisstjórn.“
Bryndís segir þetta sambærilegt við Búsáhaldabyltinguna. „Við teljum að þetta hafi verið heimsókn þar sem var hávaði og þinghald var truflað, en þetta var ekki árás á Alþingi, ekki frekar en Búsáhaldabyltingin, það var þinghald líka truflað en það var ekki árás á Alþingi.“ Og krafan er skýr. „Að ákærurnar á hendur nímenningunum verði látnar niður falla, eða að þetta mál verði sett í stærra samhengi og það verði ekki bara nímenningarnir sóttir til saka heldur allir sem hafa gert þetta sama.“
Ásgeir H Ingólfsson
Athugasemdir (2)
-
Pétur Örn Björnsson skrifar:
Og hvað ætlar Norræna velferðarstjórnin
... með allan sinn þingræðislega meirihluta að gera í þessu máli?
Fylkja í spor fasista og falangista á Spáni
... kannski aftökur á Montjuic ... Esjunni? -
Friðrik Haraldsson skrifar:
Falli núverandi óstjórn í sömu gryfju og stjórnin 1949, þarf hún ekki að kemba hærurnar. Þetta æxli á þjóðarlíkamanum þarf aðskera af áður en það verður okkur að bráðum bana. Burt með þetta rusl!!


Skrifa athugasemd