Yfirlýsing frá foreldrum
Smugunni barst eftirfarandi yfirlýsing frá foreldrum stúlku sem notið hefur stuðnings unglingasmiðju í Reykjavík og birtir hana hér í heild sinni:
Reynt hefur verið að drepa á dreif umræðu um niðurskurð borgaryfirvalda á fjárframlagi til unglingastarfs í borginni. Hæst hefur borið bréf sem Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi sendi til fjölmiðla um þetta málefni þar sem fram kom nafn einstaklings án þess að nafnbirting væri sérstaklega heimiluð. Viðkomandi borgarfulltrúi hefur beðist afsökunar á nafnbirtingunni en augljóst er að þar var um mistök að ræða sem hann kom á framfæri við fjölmiðla.
Þetta mál er okkur skylt því bréfritarinn er dóttir okkar. Í ljósi umræðunnar sjáum við ástæðu til þess að taka það skýrt fram að umrætt bréf var sent fjölmiðlum með samþykki dóttur okkar og með samþykki og vitund okkar einnig. Þannig var í engu við borgarfulltrúann að sakast. Á öllum stigum máls hafði hann samband við fjölskylduna og var umhugað um að ekkert væri gert í hennar óþökk.Við álösum borgarfulltrúanum ekki fyrir eitt eða neitt í hans framgöngu. Þvert á móti þökkum við fyrir einarðan stuðning hans við brýnt málefni.
Umræða um nafnbirtingu má ekki verða til að fólk missi sjónar af mikilvægi málefnisins sjálfs, mikilvægri umræðu um úrræði fyrir unglinga sem lenda í tímabundnum erfiðleikum. Við skorum á fjölmiðla að taka þetta málefni föstum tökum og fjalla um kjarna málsins, hvernig standa á að unglingastarfi í borginni.
Í umræddu bréfi dóttir okkar segir m.a. : “…Ég sendi þér þetta bréf til að sýna þér andúð mína á því máli að skerða niður Stíg og Tröð þar sem að Stígur hefur verð mér lífsnauðsynlegur eftir áfall sem ég lenti í.Ég er 16 ára og búin að vera á Stíg frá því í byrjun síðasta árs og hefur það hjálpað mér meira en orð fá lýst. Núna þjáist ég af áfallaröskun og félagskvíða og hef gert það lengi en aldrei hefur mér liðið svona vel þar sem að í fyrsta skiptið á ég trausta vini og að mínu mati er það Stíg að þakka.
Þessvegna bið ég þig um að hugsa, ef ekki bara smá, um þetta mál og vonandi koma í veg fyrir að hætt verður með Stíg og Tröð því að svona staðir eru ómetanlegir fyrir unglinga sem eiga erfitt með að fóta sig í raunveruleikanum.”
Foreldrar stúlku sem notið hefur stuðnings unglingasmiðju í Reykjavík

Skrifa athugasemd