Sjö handteknir á Alþingi
Vildu stöðva starfsemi ónýtrar stofnunnar
Sjö aðgerðarsinnar voru handteknir vegna mótmælaaðgerða á þingpöllum Alþingishússins á fjórða tímanum í dag. Tveir úr rúmlega 30 manna hópi aðgerðarsina fóru fram á þingpalla og vísuðu þingheimi úr húsi. Í kjölfarið frestaði þingforseti þingfundi og kallaði á lögregluna.
Lögreglan var mjög fljót að koma á staðinn, en samkvæmt heimildum Smugunnar hefur hún meiri viðbúnað en venjulega og fylgis vel með mótmælendum. Þegar lögregluna bar að var stiginn upp á þingpalla fullur af fólki og tók það hana um klukkustund að rýma hann. Samkvæmt heimildum Smugunnar voru sjö handteknir.
Smugunni barst eftirfarandi tilkynning frá aðstandendum aðgerðanna:
Kl 15 í dag fór hópur fólks inn í Alþingishúsið, í þeim tilgangi að stöðva starfsemi þingsins. Ástæðan fyrir því að við grípum til þessa ráðs er sú að Alþingi, eins og það er rekið í dag er ónýt stofnun.
Á meðan óhæf ríkisstjórn situr sem fastast, þrátt fyrir 9 vikna stanslausar kröfur almennings um að hún segi af sér, er Alþingi ófært um að þjóna lýðræði í landinu. Við lýsum því vantrausti á ríkisstjórnina og krefjumst þess að hún víki. Jafnframt biðjum hinn valdlausa minnihluta að hætta að sóa tíma sínum í tilgangslaust þras við fólk sem hvorki tekur gagnrýni til sín né telur sig þurfa að hlusta á kröfur almennings.
Athugasemdir (2)
-
Ragnar skrifar:
Heyr, heyr, fyrir þessu unga fólki sem segir nákvæmlega það sem þarf - burt með ykkur þingmenn sem styðjið ekki ríkisstjórnina - segið af ykkur þingmennsku til að mótmæla aðgerðar- og auðnuleysi ríkisstjórnar sem ekki hlustar á þjóðina eða ykkur.
Ragnar -
Ágúst Jóhannesson skrifar:
Það á að halda þessu áfram. Nóg komið af friðsælum mótmælum. Ég tek ekki þátt í svoleiðis rugli lengur.


Skrifa athugasemd