Bæjarfulltrúar leggja fram stjórnsýslukæru
Klíka fer með sjálfstæðismál
Tveir bæjarfulltrúar Á-lista á Álftanesi, Kristín Fjóla Bergþórsdóttir og Sigurður Magnússon, hafa lagt fram stjórnsýslukæru til samgöngu- og sveitarstjórnarráuneytisins. Kæran kemur til vegna þess að Kristín og Sigurður telja að tveir af þremur fulltrúum í eftirlitsnefnd um fjármál sveitarstjórnarmála séu vanhæfir til þess að fjalla um fjárhagsvandræði Álftaness. Þau segja klíku fjalla um sjálfstæðismál Álftaness.
Formann nefndarinnar, Ólaf Nílsson, telja þau vanhæfan vegna þess að hann er er fyrrverandi endurskoðandi Garðarbæjar en eins og kunnugt er leggjast fulltrúar Á-lista eindregið gegn sameiningu Garðabæjar og Álftaness eins og hugmyndir hafa verið uppi um. Þórð Skúlason segja þau hafa opinberlega lagt til sameiningu sveitarfélaganna og sé þannig vanhæfur til þess að fjalla um mál Álftaness.
Ekki liggur fyrir úrskurður hjá ráðuneytinu.
Athugasemdir (2)
-
Sóley skrifar:
Já nú á að reyna að sameina Álftanes Garðabæ þótt Álftnesingar hafi alltaf viljað reka sitt eigið sveitarfélag. Væri réttara að leiðrétta þeirra mál og greiða þeim meira frá jöfnunarsjóðnum eins og þeir hafa farið fram á. Vek athygli á góðri grein á Visi.is í dag eftir fyrrum bæjarstjóra.
hs -
Sigursteinn Másson skrifar:
Það fer ekki mikið fyrir umræðu um sameiningu sveitarfélaga þótt flest séu þau afar illa stödd og um það bil að fara að taka að sér aukin nærþjónustuverkefni við fatlaða og aldraða eins og sjálfsagt er að þau geri vilji þau ekki mismuna íbúum.
Stjórnvöld hafa sett fram þá stefnu að fækka sveitarfélögum úr 77 í 17. Ég held að þetta sé gott markmið og það eigi að vinna þessu fylgi á öllum vígstöðvum. Best væri að hér við Esjurætur væru tvær borgir í stað sjö illa skipulagðra sveitarfélaga þar sem misviturir smákóngar ríkja. Kópavogur, Garðabær, Álftanes og Hafnarfjörður sameinist og Seltjarnarnes og Mosfellsbær renni inn í Reykjavík. þá fyrst er hægt að fara að gera hlutina hér af einhverju viti.


Skrifa athugasemd