Vefrit um pólitík og mannlíf
3. september 2010

Bærinn undirlagður af trukkum

21.12.2009

trukkar004

Um það bil hundrað vinnuvélum hefur verið ekið saman um borgina þvera og endilanga nú eftir hádegið. Þar er á ferðinni verktakalestin - mótmælaaðgerð til þess að krefjast þess að ríkisstjórnin einbeiti sér að því að stuðla að mannaflsfrekum framkvæmdum.

trukkar002Nú fyrir stundu var Verktakalestin fyrir framan Alþingi og ætluðu þeir sem fyrir mómælunum standa að afhenda fjárlaganefnd áskorun um að auka fjárheimildir og ráðast þegar í stað í arðbærar framkvæmdir. Má segja að Austurvöllur hafi verið undirlagður af vinnuvélunum og máttu vegfarendur fótum fjör að launa þegar þær þutu hver af annarri Kirkjustrætið og sem leið liggur upp Suðurgötuna.

Senda grein

Athugasemdir (1)

  1. Héðinn Björnsson skrifar:

    Mikið hefði verið gaman að vera í bænum með innkaupapoka og stilla sér upp fyrir framan lestina. Hefði verið góð mynd.

    22.12.2009, kl. 9:04 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica