Krefjast róttækra aðgerða
Grasrótin fundar líka
Útrýma á notkun á jarðefnaeldsneyti á næstu 30 árum og árið 2025 ætti losun á koltvísýringi að vera komin niður fyrir eitt tonn á mann í öllum löndum heims.
Nei, svona róttækir eru ekki fundargestir á COP15 heldur grasrótar- og frumbyggjahópar sem funda á sama tíma um loftslagsmál í Kaupmannahöfn. Þar á meðal eru indjánar frá Amazon, bændur frá Malawi, tíbetskir munkar og Inúítar frá Grænlandi.
Sá fundur er aðeins óformlegri en sá í Bella Center en er haldinn skammt frá; í íþróttamiðstöð í hjarta Kaupmannahafnar. Danska ríkið styrkir þann fund að frumkvæði danskra umhverfissamtaka. Hann gengur undir nafninu Loftslagsráðstefna fólksins. Áætlað er að semja „yfirlýsingu fólkins“ sem verður afhent valdamestu leiðtogum heims í næstu viku.
Tilgangurinn er að láta rödd þeirra heyrast sem ekki teljast til heimsvelda eða þjóða og undirstrika mikilvægi þess fyrir frumbyggja og grasrótarhópa að róttækar aðgerðir verði samþykktar til þess að draga úr loftslagsbreytingum.

