Vefrit um pólitík og mannlíf
3. september 2010

Óásættanlegur niðurskurður

24.11.2009

drifa

Drífa Snædal, fulltrúi vinstri grænna í velferðarráði Reykjavíkurborgar telur forsendur sem gefnar hafa verið fyrir gerð fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010 óásættanlegar. Þar beri hæst óbreytt útsvarsprósenta þrátt fyrir aukinn rekstrarkostnað og minni tekjur borgarinnar.

„Tilgangur útsvars er að fjármagna sameiginlegan rekstur borgarbúa og því eðlilegt að þegar harðnar í ári dreifist kostnaðurinn með sanngjörnum hætti á borgarbúa. Fullnýtt útsvarsprósenta gæti skapað borginni 630 miljónir króna í tekjur árið 2010. Niðurskurðurinn er því enn meiri en nauðsyn krefur að mati Vinstri grænna,“ segir í bókun Drífu.

Drífa leggur því fram eftirfarandi tillögur að breytingum á fjárhagsáætlun Velferðarsviðs:

  • Að fjárhagsaðstoð verði hækkuð að lámarki um 18.000 krónur á mánuði og heimildagreiðslur í hlutfalli við það.
  • Að hugmyndum um skilyrðingu fjárhagsaðstoðar verði ýtt út af borðinu.
  • Að fundinn verði staður fyrir þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða út frá þörfum þeirra sem þangað sækja en ekki farið í vanhugsaða flutninga sem gætu reynst dýrari þegar upp er staðið.
  • Að fallið verði frá hugmyndum um einkarekstur og útvistun þjónustuþátta þar sem engin ástæða er til að ætla að aðrir en borgin geti rekið þjónustu á hagkvæmari hátt með sama þjónustustigi.
  • Að endurskoðun samninga verði ekki til þess að skerða nauðsynlega þjónustu sem sjúklingasamtök og önnur félög hafa sinnt í umboði borgarinnar.
  • Að barnaverndarnefnd hafi möguleika á að sinna auknu álagi og veita börnum borgarinnar þá þjónustu sem lögbundin er.


„Fulltrúi Vinstri grænna í Velferðarráði sér ekki hagræðinguna af því að útvista þjónustu á vegum borgarinnar enda liggur ekki fyrir hvernig hún hefur áhrif á þá sem þjónustuna þiggur, starfsfólk viðkomandi stofnunar og skattgreiðendur. Engin merki eru um að aðrir geti náð hagræðingu sem borgin getur ekki, án þess að það komi einhvers staðar niður. Ef meirihlutinn treystir sér ekki til að reka stofnanir á sem hagkvæmastan hátt með góðu þjónustustigi og virðingu fyrir starfsfólki ber hann að afsala sér völdu,“ segir ennfremur í bókuninni.

Senda grein

Athugasemdir (1)

  1. Hlynur Hallsson skrifar:

    Mjög góðar tillögur hjá Drífu.
    Vonandi fellur núvernadi meirihluti í Borginni í vor svo að hægt verði að byggja upp í stað þess að skera endalaust þar sem síst skildi.

    24.11.2009, kl. 20:43 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Smugan er opinn og frjáls umræðuvettvangur. Allir geta gert athugsemdir við það efni sem birtist á síðunni.. Ritstjórn áskilur sér rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem hún telur ekki hæfar til birtingar.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica